Dönsuðu vinadans í tilefni dags gegn einelti Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 8. nóvember 2013 12:03 Öll börn í Kópavogi taka þátt í eineltisdeginum sem haldinn er í dag. mynd/GVA
Börn og unglingar í Kópavogi ganga gegn einelti í dag en dagurinn er helgaður baráttunni gegn einelti. Börnin munu leiðast og halda á spjöldum sem hvetja til þess að allir lifi saman í sátt og samlyndi. Tilgangurinn er að vekja athygli á því ofbeldi sem einelti er og að einelti sé aldrei réttlætanlegt. „Það verður gengið í öllum skólahverfum bæjarins en þau eru níu talsins,“ segir Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar. Hún segir alla leikskóla, grunnskóla og félagsmiðstöðvar bæjarins taka þátt. Yngstu krakkarnir sem taki þátt séu þriggja ára og þau elstu sextán ára. Arna segir ýmsar uppákomur verða að göngunum loknum, til dæmis ætli börn og unglingar úr Kársneshverfi að syngja saman Disney-lagið „Ég er sko vinur þinn!“ Þetta er í þriðja skipti í ár sem haldinn er sérstakur dagur hér á landi gegn einelti í samfélaginu. Á vefsíðu menntamálaráðuneytisins segir að allir séu hvattir til að leggja sitt af mörkum til að einelti fái ekki þrifist í samfélaginu. Skólar, samtök og vinnustaðir eru hvattir til að beina sjónum að jákvæðum samskiptum, jákvæðum skólabrag og starfsanda. Sungu saman vinasöngva og dönsuðu vinadans Sigrún Bjarnadóttir, skólastjóri í Álfhólsskóla segir að nemendur skólans hafi skipt sér í þrjá hópa og gengu hóparnir í leikskóla hverfisins og sóttu börnin. Krakkarnir gengu saman um götur hverfisins og svo hittust hóparnir þrír í íþróttahúsinu Digranesi. "Þar sungu börnin vinasöngva. Leikskólabörnin höfðu æft söngva sem þau sungu fyrir grunnskólabörnin og grunnskólabörnin sungu fyrir leikskólakrakkana," segir hún. "Þau sungu svo að lokum öll saman og dönsuðu vinadans sem börn í félagsmiðstöð Álfhólsskóla, Pegasus, höfðu samið og sett inn á YouTube til þess að leikskólabörnin gætu æft hann," segir Sigrún.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira