Gíbraltardeilan vakin upp úr dvala Guðsteinn Bjarnason skrifar 13. ágúst 2013 09:00 Gíbraltarskagi nordicphotos/AFP
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur verið sakaður um að blása upp deilur við Breta um Gíbraltarskagann, í von um að Spánverjar fái þá um eitthvað annað að hugsa en spillingarmálin, sem hann er flæktur í, og efnahagserfiðleikana, sem hann ræður illa við. Deila Spánverja og Breta er hins vegar ævaforn og skýtur upp kollinum með reglulegu millibili. Að þessu sinni snúast deilurnar um manngert rif, sem hinir bresku ríkisborgar á Skaganum hafa sett niður við höfnina í Gíbraltar. Spænskir sjómenn hafa kvartað hástöfum um að rifið hindri för þeirra og torveldi fiskveiðar. Spænsk stjórnvöld hafa gripið til þess ráðs að herða landamæraeftirlit, með miklum töfum meðal annars fyrir ferðamenn sem ætla sér að skreppa út á skagann. Íbúar þar hafa miklar tekjur af ferðamönnum. Gíbraltarskagi er örlítill skagi út í Miðjarðarhafið, ekki nema sjö ferkílómetrar að stærð. Hann hefur tilheyrt Bretum síðan í spænska erfðastríðinu í byrjun 18. aldar, þegar Bretar hertóku skagann og héldu honum samkvæmt Utrecht-sáttmálanum 1713. Spánverjar hafa hins vegar lengi gert tilkall til skagans, og segja það brot gegn alþjóðalögum að annað ríki hafi yfirráð yfir hluta Spánar. Íbúar skagans hafa oftar en einu sinni í kosningum lýst yfir vilja sínum til að tilheyra áfram Bretlandi. Spánverjar hafa hins vegar boðið þeim að verða sjálfstjórnarhérað innan spænska ríkisins. David Cameron, forsætisráðherra Breta, ræddi við Rajoy í síma í síðustu viku, sagði viðræðurnar hafa verið uppbyggilegar en tilefnið hafi verið alvarlegt. Cameron segir að það yrði fordæmalaust, ef Bretar neyddust nú til að taka ákvörðun um að leita til dómstóla. Það verði þó ekki gert nema að vel athuguðu máli.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump Sjá meira