Brjósklos útilokað hjá Andra Ólafssyni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. júní 2013 10:00 Andri Ólafsson á enn eftir að spila deildarleik með KR. Mynd/Heimasíða KR „
Ég vona að ég fái að æfa á þriðjudaginn," segir Andri Ólafsson leikmaður KR. Andri hefur verið frá keppni í allt sumar vegna meiðsla. „Það er eitthvað að angra mig í bakinu," segir miðjumaðurinn sem gekk til liðs við KR í vetur. Andri samdi við Vesturbæjarliðið til þriggja ára og spilaði töluvert á undirbúningstímabilinu. Daginn fyrir fyrsta leik sumarsins í deildinni meiddist hann. „Það var frábær tímasetning," segir Andri léttur. Hann viðurkennir þó að vera orðinn langþreyttur á meiðslum enda hefur hann verið mikið frá keppni undanfarin ár af þeim sökum. „Þetta er örugglega líka pirrandi fyrir þá sem eru að þjálfa mig," segir Andri. Talið var að Andri gæti verið með brjósklos en sem betur fer fékkst neikvæð niðurstaða úr skoðun hvað það varðar í síðustu viku. Andri heldur til sjúkraþjálfara á þriðjudaginn og þá verður metið hvort hann geti hafið æfingar að nýju.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira