Síðasti séns Davíð Roach Gunnarsson skrifar 23. maí 2013 06:00 Í dag, 23. maí, rennur út frestur til að gera athugasemdir við nýtt deiliskipulag um Austurvöll, Fógetagarð og Ingólfstorg. Ég hvet þig, lesandi góður, til að senda inn athugasemdir við téð skipulag af eftirtöldum ástæðum. Borgarstjórn hefur hunsað vilja tæplega 17.000 íbúa, eða um 20% kosningabærra Reykvíkinga, sem mótmæltu þessu fyrirkomulagi með undirskriftum á vefsíðunni ekkihotel.is. Þess vegna er mikilvægt að sem flestir mótmæli eftir formlegri boðleiðum skrifræðisins með vefpósti á skipulag@reykjavik.is sem gefur að sjálfsögðu færi á athugasemdum þegar málefni eins og alþingiskosningar og stjórnarmyndunarumræður fá meginþorrann af kastljósi fjölmiðla. Komi skipulagið til framkvæmda mun skuggavarp á Austurvelli aukast og þrengt verður verulega að almenningsrýmunum þar og á Fógetagarði og Ingólfstorgi. Gamlar og sögufrægar byggingar verða yfirgnæfðar af stærri húsum í allt öðrum stíl. Nasa-salurinn, sem á sér gríðarlega merkilega sögu og var einn besti tónleikastaður landsins, mun einnig hverfa en húsafriðunarnefnd hugðist vernda hann en hætti við vegna hótana lögfræðinga eigenda hússins. Í því og þessu skipulagi kristallast vandamál sem lengi hefur hrjáð borgarpólitíkina, að menning og mannlíf er alltaf látið lúffa fyrir verktökum og auðvaldi. Annað nýlegt dæmi um slíkt er að rífa á annan tónleikastað, Faktorý, og þrengja verulega að Hjartagarðinum til að byggja enn eitt hótelið. Það er fullkomlega galin forgangsröðun að byggja hótel á hverjum einasta fersentrimetra miðborgarinnar og hrekja í burtu þá starfsemi og umhverfi sem gerir það á annað borð eftirsóknarvert að gista og búa þar. Þrátt fyrir að aukning ferðamannastraums til Íslands undanfarin ár sé jákvæð þróun þá virðist læmingjahugarfar fjárfesta þjóðarinnar gera ráð fyrir því að hann haldi áfram að aukast um ókomin ár og þess vegna verði að troða eins mörgum eggjum og mögulegt er í eina agnarsmáa hótelkörfu. Borgaryfirvöld ættu ekki að ýta undir þessa þróun. Borgarfulltrúar ættu að gæta hagsmuna almennings en ekki verktaka. Að auðmenn geti keypt upp hús á mikilvægum reit í hjarta borgarinnar og notað sem þumalskrúfu á stjórnmálamenn til að fara sínu fram og gerbreyta ásýnd svæðisins er algjörlega óásættanlegt. Ég hvet alla sem á stafrænum penna geta haldið og er annt um að menning og almannarými í miðbænum verði tekin fram yfir hagsmuni auðvalds til að senda athugasemdir við deiliskipulagið á skipulag@reykjavik.is í dag. Það er síðasti séns og það skiptir máli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar