Leikur einfaldan og áhrifagjarnan Hrein Skjöld Sara McMahon skrifar 16. júlí 2013 08:00 Ágúst Bent, Steindi jr. og Magnús Leifsson skrifa handritið að nýrri sjónvarpsþáttaröð sem sýnd verður á Stöð 2 á nýju ári. Fréttablaðið/arnþór birkisson „
Aðalpersónan heitir Hreinn Skjöldur og þáttaröðin fjallar um hann, bestu vinkonu hans og bróður hennar. Þetta eru sjö þættir og við nýtum hverja einustu sekúndu í brandara. Dagurinn sem serían fer í loftið verður stór dagur fyrir grínunnendur,“ segir grínistinn Steinþór Hróar Steinþórsson, eða Steindi jr., um nýja sjónvarpsþáttaröð sem hann skrifar og framleiðir ásamt Ágústi Bent Sigbertssyni og Magnúsi Leifssyni. Tökur á þáttunum hefjast í haust og verða þeir sýndir á Stöð 2 snemma á næsta ári. Steindi fer með hlutverk Hreins Skjaldar og lýsir persónunni sem einföldum manni og áhrifagjörnum. Söguþráður þáttanna er að venju ýktur og óvenjulegur og kemst Hreinn Skjöldur meðal annars í tæri við andsetinn skólastjóra, neðanjarðarátkeppni og djammara sem yfirtaka Herjólf. Þetta er í fyrsta sinn sem þremenningarnir skrifa handrit að sjónvarpsþáttaröð af þessu tagi en áður höfðu þeir skrifað handrit að sketsaþáttum sem sýndir voru á Stöð 2. „Þetta var mikil vinna og við skráðum okkur meðal annars í ritsmiðju hjá Hafsteini Gunnari [Sigurðssyni] og Árna Ólafi [Ásgeirssyni]. Svo lágum við yfir bókum og öðru efni á netinu,“ segir hann. Inntur eftir því hvort honum þyki handritsskrifin skemmtilegri en leikurinn segist Steindi ekki geta gert upp á milli. „Þetta er ólíkt en jafn skemmtilegt. Þegar maður er búinn að skrifa í einhvern tíma saknar maður þess að fara á sett og djöflast allan daginn. En svo þegar maður er búinn að vera lengi á setti, þá saknar maður þess að geta sest niður, skrifað og hlustað á tónlist,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið