Skoðað hvort Vestmannaeyjar fái nýja ferju Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 8. október 2013 10:35 Herjólfur hefur ekki getað siglt milli Eyja og Landeyjahafnar um sjötíu daga á ári og hefur þurft að sigla til Þorlákshafnar með tilheyrandi olíukostnaði til viðbótar. mynd/Óskar Pétur Friðriksson
Innanríkisráðuneytið skoða möguleikann á því að leigja nýja ferju til að sigla á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar í vetur. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar kemur fram að Herjólfur hefur ekki getað siglt milli Eyja og Landeyjahafnar um sjötíu daga á ári og hefur þurft að sigla til Þorlákshafnar með tilheyrandi olíukostnaði til viðbótar. Hugmyndin er að það gæti verið ódýrara fyrir ríkið að leigja nýja og grunnristari ferju sem gæti siglt til Landeyjahafnar að minnsta kosti hluta þeirra daga sem Herjólfur kemst ekki þangað. Það myndi einnig draga úr dýpkunarkostnaði í Landeyjahöfn. Í fréttinni kemur fram að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra staðfesti að leiga á ferju til viðbótar við Herjólf sé á meðal þess sem sé í skoðun til að bæta samgöngur til og frá Eyjum. Ráðuneytið sé meðvitað um þá annamarka sem hafa verið á þjónustunni, sérstaklega yfir vetrartímann. Í tengslum við fjárveitingar næsta árs sé verið að skoða hvort hægt sé að boða betri lausn fyrir vetrarþjónustuna. Þar hafa verið skoðaðar framkvæmdir við Landeyjahöfn eða tímabundin viðbótarferja. Að sögn Hönnu Birnu er verið að skoða þessa hluti og ekkert kemur í ljós um það fyrr en síðar í mánuðinum.
Mest lesið Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent Sæti Artúrs logar Erlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Innlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Fleiri fréttir Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn og Símanum Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Sjá meira