Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 8. október 2013 19:44 Lýst var eftir manninum í janúar eftir að hann braut gegn stúlkunum skammt frá Morgunblaðshúsinu.
Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að nema tvær sjö ára telpur á brott við biðskýli í Árbæ og brjóta gegn þeim kynferðislega. RÚV greinir frá. Atvikið átti sér stað þann 9. janúar og sagði maðurinn við stúlkurnar að hann hefði séð til þeirra stela vörum úr Krónunni við Rofabæ og ef þær kæmu ekki upp í bíl sinn myndi hann hringja á lögregluna. Ók maðurinn þá með stúlkurnar að Hádegismóum, rétt hjá Morgunblaðshúsinu, þar sem hann braut gegn þeim. Að því loknu keyrði hann stúlkurnar til baka og hleypti þeim út skammt frá þeim biðskýlinu. Í dómi héraðsdóms segir að maðurinn hafi gefið sig sjálfviljugur fram við lögreglu eftir að lýst hafi verið eftir honum og hafi hann gengist greiðlega við brotunum. Þá bendi gögn til þess að hann hafi að einhverju leyti reynt að vinna bug á vanda sínum. Auk fangelsisvistarinnar var manninum gert að greiða stúlkunum 800 þúsund krónur hvor, en fimm daga gæsluvarðhald dregst frá refsingu mannsins.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira