Sex leituðu á neyðarmóttöku Stígur Helgason skrifar 8. október 2013 07:00 Eyrún Jónsdóttir segir að þessar tölur séu því miður ekkert einsdæmi.
Sex konur leituðu á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítalanum um liðna helgi. Þetta staðfestir Eyrún Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnisstýra neyðarmóttökunnar, og bendir jafnframt á að algengt sé að konur komi eftir helgina og tilkynni um nokkurra daga gömul brot. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu höfðu í gær fjögur kynferðisbrot verið tilkynnt til embættisins eftir helgina. Þar af hafði einn þolandinn ekki farið á neyðarmóttökuna. Málin virðast því vera minnst sjö. Ein kona kom á neyðarmóttökuna að kvöldi fimmtudagsins var, þrjár á föstudagskvöld og tvær á laugardagskvöld, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Ekki var um fullframdar nauðganir að ræða í öllum tilfellum. „Þetta er ekkert einsdæmi, því miður,“ segir Eyrún, sem segir sex heimsóknir yfir eina helgi þó vissulega með því mesta sem gerist. „Það er eins og þetta gangi stundum í bylgjum, hvað sem veldur. Ég veit ekki hvað gerir þessa helgi öðruvísi en aðrar,“ segir hún. Brot af þessu tagi tengjast yfirleitt skemmtanalífinu, að sögn Eyrúnar, og hugsanlega hafi það haft áhrif að liðin helgi hafi verið sú fyrsta í mánuðinum, fólk hafi þá rýmri fjárráð og því mögulega fleiri að skemmta sér. Eyrún segir að fyrir helgina hafi neyðarmóttakan verið heimsótt 110 sinnum á árinu, samanborið við 136 allt árið í fyrra og 118 árið 2011. Um það bil helmingur málanna sé yfirleitt kærður til lögreglu.
Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Fleiri fréttir Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Sjá meira