Lyfjagreiðslukerfið einfaldað Jón Júlíus Karlsson skrifar 11. október 2013 16:35 Kristján Þór Júlíusson undirritaði nýja reglugerð í dag. Mynd/Stefán
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra undirritaði í dag reglugerð sem gerir breytingar á nýja lyfjagreiðsluþátttökukerfinu sem tók gildi 4. maí síðastliðinn. Breytingarnar fela í sér aukna sjálfvirkni til einfölduar jafnt fyrir lyfjanotendur og lækna. Breytingin tekur gildi þann 1. desember næstkomandi. Frá þeim tíma öðlast fólk sjálfkrafa rétt til fullrar greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði þegar það hefur náð þakinu sem skilgreinir hámarkskostnað einstaklings. Umsókn læknis sem nú er krafist verður þar með óþörf. Lyfjagreiðslukerfið sem tók gildi 4. maí síðastliðinn byggist á þrepaskiptri greiðsluþátttöku þar sem hver einstaklingur greiðir hlutfallslega minna eftir því sem lyfjakostnaður hans eykst innan tólf mánaða tímabils. Í fyrsta þrepi greiðir einstaklingurinn lyf að fullu, í öðru þrepi greiðir hann 15% af verði lyfja og í þriðja þrepi greiðir hann 7,5%. Þegar lyfjakostnaður hefur náð ákveðnu hámarki getur læknir sótt um að Sjúkratryggingar Íslands greiði lyf viðkomandi að fullu það sem eftir er tímabilsins. Krafa um að læknir sæki sérstaklega um fulla greiðsluþátttöku til sjúkratrygginga hefur verið gagnrýnd frá upphafi og bent á að nýta bæri kosti rafræna kerfisins að fullu þannig að þetta gerðist sjálfkrafa. Fyrir þessu var þó sérstök ástæða þar sem markmiðið var að hafa eftirlit með fjöllyfjanotkun og grípa inn í ef þörf krefði. Með breyttu verklagi Sjúkratrygginga Íslands hefur verið tryggt að þetta markmið glatast ekki og stofnunin mun engu að síður fylgjast með fjöllyfjanotkun og bregðast við eftir þörfum, þrátt fyrir að ekki verði lengur þörf fyrir umsókn læknis eftir breytinguna sem tekur gildi 1. desember næstkomandi. Umrædd breyting mun leiða til aukins hagræðis og einföldunar á framkvæmd kerfisins. Hjá læknum sparast vinna við gerð umsókna og einstaklingarnir sem í hlut eiga þurfa hvorki að bíða eftir útgáfu skírteinis né greiða fyrir kostnað vegna umsóknar læknis.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira