Skiptar skoðanir á sjónvarpsþættinum The Biggest Loser Kristjana Arnarsdóttir skrifar 29. júní 2013 08:45 Sigrún Daníelsdóttir, formaður Samtakanna um líkamsvirðingu, segir heilsu og velferð oft verða út undan í þáttum eins og The Biggest Loser. Fréttablaðið/Ernir „
Við höfum rætt þetta í samtökunum og okkur finnst þetta skelfilegt uppátæki,“ segir Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og formaður Samtakanna um líkamsvirðingu. Skjár 1 tilkynnti það fyrr í vikunni að sýningar á íslenskri útgáfu raunveruleikaþáttarins The Biggest Loser hæfust í haust og að byrjað væri að taka við umsóknum. Ansi skiptar skoðanir spruttu fram á íslenskum vefmiðlum í kjölfarið. Þátturinn snýr að fólki í yfirþyngd sem keppist innbyrðis að því að missa sem flest kíló og mun sá sem stendur uppi sem sigurvegari hljóta veglega peningaupphæð að launum. Sigrún segir að þættirnir séu þekktir fyrir rosalega hörku. „Fólk er látið ganga fram af sér hvað varðar æfingaálag og öfgamegrun. Það er líka gert út á niðurlægingu, fólk er skammað og því refsað. Þegar allt kapp er lagt á að missa sem flest kíló verða heilsa og velferð oft út undan,“ segir Sigrún. Ríflega 600 manns höfðu sent inn umsókn í þáttinn í gær. Þó hefur borið á því að margir hafi sent inn umsóknir í gríni, líkt og gerðist með Ungfrú Ísland á dögunum. Ekki náðist í Ingu Lind Karlsdóttur, umsjónarmann þáttarins, við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira