Diskókonungurinn ennþá í fullu fjöri Marín Manda Magnúsdóttir skrifar 17. júlí 2013 09:30 Nile Rodgers kemur fram með hljómsveitinni Chic í Silfurbergi í Hörpu í kvöld. Fréttablaðið/Daníel „
Á þessu tónleikaferðalagi spilum við á fleiri stöðum en ég hef nokkurn tímann gert síðan ég stofnaði Chic árið 1976. Á þessu ári spilum við á yfir 200 tónleikum, sem er alveg ótrúlegt. Ég vil ekki vera monta mig, því ég er ekki þannig manneskja en ég hef heyrt að þessi sýning sé númer eitt á þeim tónleikahátíðum sem við höfum verið á, enda spilum við alltaf eins og þetta séu síðustu tónleikarnir okkar,“ segir Nile Rodgers glaður í bragði.Skemmtir sér best þegar nóg er að gera Rodgers hefur selt yfir 100 milljónir platna í gegnum feril sinn og um þessar mundir er hann staddur á Íslandi á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu. Í kvöld kemur hann fram í Hörpunni með diskóhljómsveitinni Chic. Hljómsveitina stofnaði hann ásamt besta félaga sínum, Bernard Edwards, en tvíeykið hefur samið ófáa tónlistarsmelli í gegnum tíðina. Edwards lést fyrir 17 árum eftir tónleika í Japan en Nile Rodgers heldur ótrauður áfram og segist skemmta sér best þegar hann hefur nóg að gera og getur horft fram á við. „Ég er alltaf að hugsa um næsta skref og dvel því ekki mikið í núinu. Ég fékk krabbamein fyrir tveimur árum og læknarnir héldu að ég myndi ekki lifa það af. Því trúi ég því að jákvæð og sterk viðhorf til lífsins komi manni ansi langt, ásamt því að vera að gera það sem maður elskar.“Vann með Madonnu og Diönu Ross Rodgers hefur einu sinni áður komið til Íslands en þá spilaði hann með hljómsveitinni New York City. Bandið kom til landsins árið 1972 og spilaði á herstöðinni í Keflavík. Tónlistargoðið hefur unnið með öllum helstu nöfnunum í tónlistarheiminum en þar má nefna Luther Vandross, Sister Sledge, Diönu Ross, Madonnu, Simon le Bon og fleiri. Fram undan segir hann að tvær plötur séu á leiðinni og ný smáskífa sé einnig væntanleg í samstarfi við Daft Punk en lagið Get Lucky varð heldur betur vinsælt í ár. Miða má kaupa á Miði.is.
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Fleiri fréttir Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Sjá meira