Ætlar að rokka í Reykjavík Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. ágúst 2013 08:00 Síðan Ásgeir Börkur yfirgaf Sarpsborg hefur norska liðið tapað báðum sínum leikjum. Börkur segir liðið hafa spilað vel en varnarleikurinn gengið illa. Liðið hefur fengið á sig níu mörk í leikjunum tveimur án hans. Mynd/Stefán „
Við vorum töluvert betra liðið í fyrri hálfleik og hefðum átt að gera út um leikinn þá,“ segir Ásgeir Börkur Ásgeirsson, miðjumaður Fylkis. Árbæingar lögðu Stjörnuna 2-1 á miðvikudagskvöldið en sigurinn var sá þriðji í röð. Leikurinn er einnig þriðji leikur Ásgeirs Barkar, sem sneri aftur í Árbæinn eftir sextán vikna lánsdvöl hjá Sarpsborg 08 í Noregi. Ásgeir Börkur er leikmaður 14. umferðar að mati Fréttablaðsins. „Ég hafði auðvitað oft talað um að það væri draumurinn að fara í atvinnumennsku,“ segir Ásgeir Börkur, sem oftast er kallaður Börkur. Hann kunni vel að meta tímann í Noregi. Eftir bekkjarsetu í fyrsta leiknum fékk miðjumaðurinn stórt hlutverk í liði nýliðanna í úrvalsdeildinni og stóð sig vel. „Þetta gekk framar vonum, þjálfarinn hafði trú á mér og ég spilaði meira en ég bjóst við. Ég fór samt auðvitað út fullur sjálfstrausts og ætlaði mér sæti í liðinu,“ segir Börkur. Á þeim stutta tíma sem hörkutólið Börkur spilaði í Noregi þurfti hann tvívegis að taka út leikbann vegna gulra spjalda, nokkuð sem hann þekkir vel úr íslenska boltanum.Var lagður í einelti „Dómararnir hérna heima hafa auðvitað lagt mig í einelti,“ segir hann hlæjandi. „Það er mitt hlutverk í liðinu að brjóta niður sóknir.“ Spjöldin fylgi oftar en ekki í kjölfarið. Það var að vonum svekkjandi fyrir miðjumanninn þegar honum var tilkynnt að Sarpsborg ætlaði ekki að kaupa hann frá Fylki að lánstímabilinu loknu. Forráðamenn báru fyrir sig slæman fjárhag félagsins. „Þau voru skilaboðin sem ég fékk,“ segir Börkur. Hann bætir við að samningsstaða sín hjá Fylki hafi líklega ekki hjálpað til. Börkur á aðeins þrjá mánuði eftir af samningi sínum og því ljóst að Sarpsborg eða önnur félög geta fengið hann frítt í lok leiktíðar. „Það var smá súrt að geta ekki haldið áfram í atvinnumennskunni sem var frábær í alla staði.“Væri annars ekki merkilegur Einhverjir hefðu átt í erfiðleikum með að gíra sig upp í leiki í Pepsi-deildinni eftir heimkomuna. Ekki Börkur, sem hefur verið frábær í öllum þremur sigurleikjum Árbæinga. Baráttan einkennir hans leik. „Svona er ég bara. Ef ég myndi ekki gefa mig í alla leiki og hlaupa úr mér lungun væri ég ekki merkilegur knattspyrnumaður. Maður þarf að gera það sem maður gerir vel og leggja sig 100% fram,“ segir Börkur. Þótt vonbrigðin hafi verið mikil að snúa heim úr atvinnumennskunni sá hann ljósa punkta og ný markmið. „Þá var tækifæri til þess að hjálpa liðinu mínu, enda er ég mikill Fylkismaður.“ Börkur hefur sinnt tónlistinni meðfram fótboltanum og bæði sungið með hljómsveitinni Shogun, sem vann Músíktilraunir árið 2007, og Mercy Buckets, sem hann söng með í vetur. „Við spiluðum mikið í vetur og sömdum á fullu,“ segir Börkur en hljómsveitin tók sér hlé við brottför Barkar til Noregs. Æfingar eru fyrirhugaðar á næstunni. „Við ætlum að spila á tónleikum og rokka í Reykjavík,“ segir Börkur. Þá eru meðlimir Shogun einnig komnir með hljóðfærin í hönd og spila gömlu slagarana að sögn Barkar. Miðjumaðurinn 26 ára stefnir ótrauður á að endurnýja kynnin við atvinnumennskuna. „Ekki spurning. Ég klára tímabilið með fagmönnunum í Fylki og stefni svo á að koma mér út í janúar. Nú er ég búinn að fá smjörþefinn af þessu og hef séð að ég get staðið í stóru köppunum í norsku úrvalsdeildinni,“ segir Ásgeir Börkur Ásgeirsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Golf Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Enski boltinn Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Körfubolti „Dásamleg manneskja með risastórt hjarta“ Fótbolti Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akureyri Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Sjá meira