Erfir mann sem reyndi ítrekað að skilja við hana Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 6. nóvember 2013 14:07 Börn mannsins töldu að fara ætti eftir skýrum vilja föðurs síns. Mynd/GVA
Eiginkona manns, sem hafði ítrekað reynt að skilja við hana, telst samt lögerfingi hans samkvæmt úrskurði Hæstaréttar. Maðurinn lést í október 2012 en hafði óskað eftir skilnaði af borði og sæng í júlí sama ár. Hjónin voru í kjölfar skilnaðaróskarinnar boðuð til viðtals hjá sýslumanni en konan mætti ekki. Var hún aftur boðuð til viðtals í september sama ár en fékk henni frestað þar sem hún væri erlendis. Var þá boðað til þriðja viðtalsins í október. Maðurinn lést í millitíðinni. Talsverðar eignir voru í dánarbúinu, þar á meðal húseignir, bifreið, sumarhús, bankainnistæður, bátur og fleira. Börn mannsins töldu að faðir þeirra hefði átt rétt á leyfi til skilnaðar að borði og sæng þegar hann lést. Áform þeirra hjóna um skilnað hafi legið lengi fyrir og þau hafi slitið samvistum nokkru áður. Konan hélt því fram að þau hefðu sannarlega verið í hjónabandi þegar hann lést, sem ekki hefði verið slitið með hjónaskilnaði, ógildingu hjúskapar með dómi eða með skilnaði að borði og sæng. Þá vísaði hún til sanngirnisraka, þótt vilji mannsins hafi á einhverjum tíma staðið til þess að slíta samvistum við hana þá hafi hann aldrei gengið frá slíkum hjúskaparslitum, hann hafi til að mynda ekki lagt fram fjárskiptasamning. Héraðsdómur, sem staðfestur var af Hæstarétti, taldi réttinn til hjónabands og skilanaðar vera persónulegs eðlis og erfist ekki. Þannig væri ekki hægt að gefa út leyfi til skilnaðar eftir andlát aðila. Var krafa konunnar um opinber skipti á dánarbúi mannsins tekin til greina og hún taldist því lögerfingi mannsins.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira