„Mikilvægt að hrósa börnum“ Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 6. nóvember 2013 20:15
Íþróttasálfræðingur segir mikilvægt að börnum sé hrósað og þeim leiðbeint þegar kemur að þeim íþróttum sem þau stunda. Hann segir mun fleiri börn stunda íþróttir til að hafa gaman en til að vinna. Flest börn stunda einhverjar íþróttir á meðan þau eru að vaxa úr grasi og gera þau það á mismunandi forsendum. Eitt barn getur haft það fyrir augum að verða afreksmaður á meðan annað mætir á æfingar til að vera í stuði með félögum. Fréttastofa ræddi við nokkra foreldra og þjálfara í dag og virðist pressa á börn koma úr mörgum áttum. Sumum foreldrum finnst þjálfarar of harðir við börn sín og svo segja þjálfarar suma foreldra setja mikla pressu á eigin börn, þeir hangi á öllum æfingum kvartandi yfir því að börnin þeirra séu ekki í flokknum fyrir ofan. Hallur Hallsson íþróttasálfræðingur segir börn fyrst og fremst þurfa stuðning og að skapað sé rétt umhverfi fyrir þau. „Þá þurfum við að vita ástæður þess að börn eru að stunda íþróttir og rannsóknir hafa sýnt aftur og aftur að númer eitt tvö og þrjú er það ánægjan af íþróttinni“. Hann segir það vera ástæðuna fyrir því að börnin eru að stunda íþróttina og að áhersla á sigur og það að vera bestur og svoleiðis, það sé venjulega númer fjögur og fimm. Hallur er á að mikilvægt sé að skapa umhverfi við íþróttaiðkun sem hámarkar ánægju. „Ef að barni finnst gaman í íþróttinni þá er það mun líklegra til að halda áfram þegar illa gengur og á móti blæs“, segir hann. Hallur segir mikilvægt að hrósa fyrir það sem vel er gert og að leiðbeina á góðan hátt um það sem má betur fara. „Ekki skammir og það skiptir einnig miklu máli að það sé ekki mikill félagslegur samanburður heldur sé samanburður miðaður við hvernig fyrri frammistaða hefur verið“, segir hann.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira