Ensími með sárabótatónleika vegna Keflavik Music Festival Kristján Hjálmarsson skrifar 7. júní 2013 13:35 Ensími ætlar að halda sárabótatónleika vegna Keflavík Music Festival. Fréttablaðið/Arnþór
Hljómsveitin Ensími ætlar, ásamt fleiri tónlistarmönnum, að halda ókeypis tónleika í tilefni þess að sveitin þurfti að afboða komu sína á Keflavik Music Festival. Tónleikarnir fara fram í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur föstudaginn eftir viku. Eins og fram kom á Vísi í morgun hætti Ensími og Sign við að koma fram á Keflavík Music Festival vegna. Í tilkynningu frá Ensíma segir: "Ástæðan fyrir því að Ensími afboðaði framkomu sína á Keflavik Music Festival eru vanefndir samninga, skipulagsleysi og almennt samskiptaleysi við skipuleggjendur sem svöruðu hvorki símtölum né skilaboðum tónlistarmanna sem vildu fara yfir stöðu mála áður en auglýst dagskrá myndi hefjast. Tónlistarmenn fengu boð um að skipuleggjendur væru á leiðinni í eigin persónu til að ræða málin en enginn þeirra lét sjá sig. Aðallega er þó ástæða þess að Ensími kom ekki fram sú að engin gæsla var á tónleikasvæðinu og því beinlínis um ólöglegan viðburð að ræða og hljómsveitin var ekki tilbúin til að taka þátt í þannig gjörning." Í tilkynningunni segir að hljómsveitinni þyki mjög leitt að gestir hátíðarinnar hafi ekki fengið þá dagskrá sem þeir hafi verið búnir að greiða fyrir. "Liðsmenn voru allir af vilja gerðir að fá jákvæða niðurstöðu með skipuleggjendum; með því að bæta úr aðbúnaði og fleiru svo tónleikarnir gætu farið fram, en eins og áður kom fram þá náðist ekki í skipuleggjendur og þeir létu svo ekki sjá sig eftir að hafa boðið komu sína á fund við listamenn. Við vonum að gestir hátíðarinnar sýni þessu skilning og erfi það ekki við okkur að þurfa að afboða," segir í tilkynningu Ensíma.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira