Hægt að velja um fegurstu og ljótustu orð íslenskrar tungu Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 21. október 2013 16:16 "Öll umræða í kringum þetta er góð og það er gaman hvað er mikið rætt um þetta, hvar sem maður kemur og um að gera að hafa þetta frá öllum sjónarhornum.“ mynd/365
Nú hafa um 6400 tillögur borist inn vegna leitarinnar að fegursta orði íslenskrar tungu. Ástráður Eysteinsson er formaður starfshópsins sem mun fara yfir þær tillögur sem borist hafa. „Þessu lýkur á miðnætti annað kvöld,“ segir Ástráður. „Þátttakan hefur verið mjög góð og við erum mjög ánægð með þetta.“ Að sögn Ástráðs eru þau sjö í starfshópnum og þau koma til með að fara yfir öll orðin þegar söfnuninni lýkur. „Þá veljum við tíu tillögur í hverjum aldursflokki, en aldursflokkarnir eru þrír. Síðan verður netkosning, sem ég býst við að byrji 5. nóvember og hún verður opin í viku. Þá hefur almenningur valið.“ Nú hefur verið opnuð Facebook-síða þar sem hægt er að velja ljótasta orðið í íslenskri tungu. „Ég er ekki búinn að sjá síðuna en ég frétti af henni í morgun,“ segir hann. „Öll umræða í kringum þetta er góð og það er gaman hvað er mikið rætt um þetta, hvar sem maður kemur og um að gera að hafa þetta frá öllum sjónarhornum,“ segir Ástráður. Á Facebook-síðu ljótasta orðsins, eru komnar nokkar tillögur, meðal annars geirvarta, dugnaðarforkur, ófrísk og vinstri. Þá þykir síðuhöfundum orðið sósa vera dæmi um ljótt orð. „Það er mikilvægt að fá það staðfest að tungumálið er ekki aðeins talið vera sjálfvirkur samskiptamiðill, heldur hefur fólk raunverulegan áhuga á ríkidæmi málsins, blæbrigðum í merkingu og notkun orða og hinum margbreytilegu tengslum málsins við bæði hugarheim okkar og umhverfi nær og fjær,“ segir Ástráður í grein sem hann skrifaði á Vísi um helgina.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira