Mikil gróska í reggítónlist Hanna Ólafsdóttir skrifar 21. júní 2013 12:00 Hljómsveitin Amaba Dama er á meðal þeirra sem munu spila á reggítónlistarhátíð á Faktorý á laugardag. Frá hægri eru Kolfinna Nikulásdóttir, Steinunn Jónsdóttir og Gnúsi Yones.
Næstkomandi laugardag mun framandi stemmning svífa yfir vötnum á skemmtistaðnum Faktorý, en þá verður haldin allsherjar reggíhátíð á staðnum. Hátíðin byrjar klukkan 14 með listasýningu, basar, „soul food“ og tónlist en um kvöldið munu hljómsveitirnar Amaba Dama, Ojba Rasta og Hjálmar stíga á stokk ásamt fleirum. Steinunn Jónsdóttir, önnur tveggja söngkvenna í hljómsveitinni Amaba Dama, segir mikla grósku í reggítónlist hér á landi. „Mér finnst áhuginn fyrir reggítónlist alltaf að verða meiri, enda sést það best á vinsældum bæði Hjálma og Ojba Rasta. Það myndast líka iðulega mjög skemmtileg stemmning á tónleikum og fólk dansar eins og það eigi lífið að leysa.“ Steinunn segir hljómsveitirnar þrjár sem koma fram allar vera að gefa úr nýtt efni sem mun fá að hljóma í bland við eldra. Tíu heppnir tónleikagestir eiga kost á að vinna átta daga passa á tónlistarhátíðina Rototom Sunsplash sem haldin verður 17. til 24. ágúst á Spáni. Það eru meðlimir í plötusnúðahópnum RVK Soundsystem sem standa fyrir hátíðinni. Tónleikarnir byrja klukkan 22 og aðgangseyrir er 2.000 krónur. „Ég held að ég geti lofað mjög góðri stemmningu og hvet alla til að koma og dansa og upplifa smá sumarfíling,“ segir Steinunn að lokum.
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Fleiri fréttir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Sjá meira