"Boot Camp búðir fyrir hausinn" Marín Manda skrifar 21. júní 2013 15:00 Unnur María og Arnór Már í húsnæði Evolvia á Klapparstíg. Mynd/
Unnur María Birgisdóttir og Arnór Már Másson, eigandi AM Markþjálfunar, vilja styrkja ungmenni og leiðbeina á beinar brautir í lífinu með jákvæðum og hvetjandi aðferðum. "Umræðan um unglinga á tímamótum hefur verið þó nokkur undanfarið en hún hefur að mestu verið neikvæð og lítið borið á lausnum. Málefnið er ótrúlega verðugt og brýnt. Þegar öllu er á botninn hvolft þá eru það unglingarnir sem hafa lykilinn að framtíðinni og við verðum að hlúa að þeim," segir Unnur María Birgisdóttir markþjálfi. Unnur María og Arnór Már Másson markþjálfarar hafa nú hafið samstarf um verkefnið Í heilu lagi þar sem þau bjóða upp á markþjálfunarbúðir í sumar fyrir ungmenni á aldrinum 15-16 ára. Hugmyndin að verkefninu kom upp á yfirborðið í kjölfar umræðna í fjölmiðlum um mikið brottfall unglinga úr menntaskólum. Unnur segir tvíeykið vilja bregðast við þörfinni sem virðist vera til staðar í samfélaginu og vinna á jákvæðan og uppbyggilegan hátt með ungmennum til þess að hjálpa þeim að finna sinn eigin takt í lífinu. Hún segir þau Arnór Má hafa brennandi áhuga á að vinna með ungmennum sem mörg hver fara í gegnum mikilvægt en viðkvæmt aldursskeið.Nýtt á Íslandi"Það er ekki boðið upp á neitt sambærilegt á Íslandi en markþjálfunarbúðirnar eru eins konar bootcamp-búðir fyrir hausinn þar sem unnið er markvisst með sjálfstraustið og samskipti og unglingum er hjálpað að taka stefnumarkandi ákvarðanir í lífinu. Markþjálfun er íslenska þýðingin á coaching en þetta er í stuttu máli ótrúlega flott verkfæri sem notað er til þess að vinna með heilbrigðu fólki," segir Unnur og bætir við að þetta verkfæri sé aðferð til þess að hjálpa einstaklingum að uppgötva styrkleika sína og ná persónulegum vexti. Markþjálfunarbúðirnar eru sex daga námskeið sem samanstendur af fjórum kennsludögum í borginni og tveggja daga ferð út á land með gistingu og uppihaldi á gistiheimilinu Milli vina í Borgarfirði.
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Fleiri fréttir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Sjá meira