Væntir þess að Landspítalinn fái það sem þarf til viðspyrnu Jakob Bjarnar skrifar 30. september 2013 11:51 „Þetta er bara nýskeð. Ráðherra hafði samband við mig í seinnipartinn í síðustu viku og í rauninni bar þetta upp við mig þá," segir Páll. Mynd/Vilhelm
Páll Matthíasson geðlæknir er nýr forstjóri Landspítala. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra tilkynnti um stöðuveitinguna nú á 12. tímanum. Björn Zoega sagði sig frá starfinu fyrir helgi með þeim orðum að hann ætlaði ekki að verða maðurinn sem færi með spítalann yfir bjargbrúnina. Páll tekur því við erfiðu búi, en verkefnið leggst ágætlega í hann. „Ég þekki verkefnið í rauninni vel. Ég er búinn að vera í framkvæmdastjórninni með Birni [Zoëga, fráfarandi forstjóra] í fjögur og hálft ár og hef stundum leyst hann af. Þannig að ég er ekki alveg ókunnur starfseminni," segir Páll. „Einhver þarf að taka við stýrinu og tryggja það að þessi vagn haldist á sporinu. Það er verkefni mitt og í rauninni alls spítalans að gera það.“ Páll segir stutt síðan að ráðherra hafi komið að máli við hann. „Þetta er bara nýskeð. Ráðherra hafði samband við mig í seinnipartinn í síðustu viku og í rauninni bar þetta upp við mig þá," segir Páll og viðurkennir að þetta hafi verið erfið ákvörðun. „Þetta er það auðvitað. Staða spítalans er erfið. Ég bara trúi og treysti því að þingið og ríkisstjórnin vinni með okkur starfsfólkinu í að finna lausnir á þessum vanda sem blasir við. Að því leyti er þetta erfitt en á móti kemur að ég þekki spítalann vel og veit að þar vinna hátt í fimm þúsund frábærir einstaklingar. Það er tilhlökkunarefni að fara að vinna með því góða fólki enn frekar en áður.“ Spurður hvort hann njóti stuðnings í starfinu segir Páll: „Ég vona það. Þetta snýst ekki um mig. Ég er bara einn af hátt í fimm þúsund starfsmönnum og við þurfum bara að vinna saman. Ég mun fara inn á við og leita leiða til að leiða spítalann áfram.“ Fjárlög verða lögð fram nú um mánaðarmótin. Líklegt verður að teljast að heilbrigðisráðherra hafi leyft Páli að skoða í þau áður en hann tók ákvörðun um að taka að sér þetta mikla verkefni? „Já, ég hef aðeins fengið að skyggnast í það, eins og Björn áður, og er bundinn trúnaði með það. Næstu vikur fara í umræður um fjárlög og ég treysti því að við munum eiga gott samstarf við þingið um það að Landspítalinn fái það sem þarf til að ná viðspyrnu.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Sjá meira