Viðskipti innlent

Hannar sumarlínuna í desember

Haraldur Guðmundsson skrifar
Guðmundur Jörundsson hætti í menntaskóla til að afla sér reynslu í fatahönnun.
Guðmundur Jörundsson hætti í menntaskóla til að afla sér reynslu í fatahönnun. Fréttablaðið/Valli
„Það var alltaf markmiðið að stofna mitt eigið vörumerki og það varð að veruleika í október á síðasta ári,“ segir Guðmundur Jörundsson, fatahönnuður og einn eigenda verslunarinnar JÖR á Laugavegi.

Guðmundur starfaði áður sem yfirhönnuður Herrafataverslunar Kormáks og Skjaldar og ákvað eftir nokkur ár þar að stofna sitt sitt eigið fatamerki.

Hann og Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóri JÖR, sömdu í kjölfarið við erlendar fataverksmiðjur um framleiðslu á vörum þeirra. Þar á meðal er verksmiðja í Tyrklandi sem framleiðir meðal annars föt fyrir Armani og Paul Smith.

„Nú erum við á fullu við að klára framleiðslu á öllum okkar vörum fyrir jólin því við erum að fara að opna dömudeild í byrjun desember. Á sama tíma erum við einnig að klára sumarlínu JÖR,“ segir Guðmundur. Hann er með BA-próf í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands og stundaði áður nám við Menntaskólann í Hamrahlíð en hætti þar til að afla sér í reynslu í fatahönnun.

Guðmundur er mikill stangveiðimaður og fer oft í lax- eða silungsveiði á sumrin.

„Ég lifi fyrir að veiða, enda byrjaði ég að veiða áður en ég byrjaði að ganga. Önnur áhugamál mín eru fatahönnun og ég fer mikið á skíði og svo er ég fótboltaáhugamaður.“

Guðmundur er trúlofaður Kolbrúnu Vöku Helgadóttur, mannfræðingi og aðstoðarframleiðanda á RÚV. Þau eiga saman tveggja ára son, Jörund Örvar.

Spurður um hvað sé framundan hjá honum segir Guðmundur að JÖR taki snemma á næsta ári þátt í tveimur erlendum tískusýningum.

„Við verðum meðal annars á Copenhagen Fashion Summit 2014 sem verður haldin í lok apríl. Svo eru uppi hugmyndir um að færa vörumerkið út til útlanda en það er enn á byrjunarstigi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×