Hagnaður Íslandsbanka dregst saman um 800 milljónir milli ára Stefán Árni Pálsson skrifar 27. nóvember 2013 09:16
Hagnaður Íslandsbanka dregst saman um 800 milljónir króna milli ára en bankinn birtir í dag afkomu þriðja ársfjórðungs 2013. Hagnaður bankans var 16,2 milljarðar króna á sama tíma fyrir ári en er í dag 15,4 milljarðar. Afkoma bankans eftir skatta var jákvæð um 4,2 milljarða á þriðja ársfjórðungi en 4,6 milljarðar fyrir einu ári síðan. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 10,6% á fjórðungnum en 13,4% sé horft til fyrstu níu mánaða ársins en samkvæmt fréttatilkynningu frá Íslandsbanka skýrist lækkun á arðsemi að mestu af hærra eigin fé, sem hefur hækkað um 3% á milli fjórðunga og 14% á milli ára. Eiginfjárhlutfall er áfram sterkt eða 27,2% og eiginfjárhlutfall er 23,9%. Hreinar vaxtatekjur námu 7,4 milljarðar króna en var á sama tíma fyrir ári síðan 7, milljarðar sem er lækkun um 5.1% milli ára. Kostnaðarhlutfall lækkaði í 48,5% á þriðja ársfjórðungi. „Það sem uppúr stendur á fyrstu níu mánuði ársins er sá góði árangur sem við höfum náð í rekstrarhagræðingu þar sem kostnaður bankans lækkaði um 732 milljónir sem er raunlækkun kostnaðar 7,5% á milli ára. Þessi lækkun byggir á ýmiskonar markvissum aðgerðum m.a. sameiningu útibúa,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. „Afkoma bankans var í takt við áætlanir og arðsemi eigin fjár var 13,4% sem hlýtur að teljast gott í ljósi sterkrar eiginfjárstöðu en eiginfjárhlutfall bankans var 27,2%“. „Þó svo að sumarið seti gjarnan svip sinn á þennan ársfjórðung þá var engu að síður mikið um að vera í bankanum. Þóknanatekjur jukust um 13% á milli ára í 7,6 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 6,7 milljarða á sama tímabili í fyrra“. „Gæði lánasafnsins jókst milli fjórðunga, hlutfall lána í meira en 90 daga vanskilum var 5% í lok tímabilsins og hlutfall lána í endurskipulagningu (LPA) var 9,8%, sem er mikill árangur en staða lána í endurskipulagningu nam 44% árið 2009."
Mest lesið Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Sjá meira