Sér um að hausinn á dómurum sé í lagi Stefán Árni Pálsson skrifar 28. ágúst 2013 12:45 Jóhann Ingi Gunnarsson
Jóhann Ingi Gunnarsson, íþróttasálfræðingur og fyrrum handknattleiksþjálfari, stendur fyrir námskeiði fyrir evrópska handknattleiksdómara með því markmiðið að bæta leiðtogahæfileika þeirra og sjálfstraust. Jóhann Ingi hefur áður þjálfað íslenska landsliðið í handknattleik og einnig stórliðið Kiel í Þýskalandi. Hann á að baki farsælan feril sem þjálfari en hefur nú snúið sér alfarið að sálfræði. Jóhann mun halda námskeið í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins í Vín daganna 30. ágúst – 1. september. Námskeiðið er einn af aðal undirbúningsnámskeiðunum fyrir Evrópumóti í Danmörku sem fram fer í janúar á næsta ári. 16 dómarapörum hefur verið boðið á námskeiðið en aðeins komast tólf pör á mótið sjálft. „Dómarar stjórna leiknum,“ sagði Jóhann Ingi í viðtali við vefsíðu evrópska sambandsins. „Það er ekki hægt að láta handboltaleik fara fram án dómara og því verða þeir að læra ákveðna leiðtogahæfileika til að stjórna leiknum.“ „Dómarar þurfa að koma jafn vel undirbúnir og leikmenn á svona stórmót og þurfa því einnig að vinna mikið í andlega þættinum.“ „Við reynum að fara í gegnum hvernig dómarar eiga að takast á við erfiðar aðstæður og einnig er mikilvægt fyrir þá að takast á við sín eigin mistök. Það er mikilvægt fyrir dómara að jafna sig sem allra fyrst á þeirra mistökum og halda ótröðum áfram.“ Jóhann Ingi ætlar sér að fara með sálfræðilega þáttinn enn lengra fyrir Evrópumótið í Danmörku. „Það er mikilvægt að byggja upp jákvætt viðhorf til dómara í íþróttinni og ég verð þeirra innan handa allt mótið í Danmörku.“ „Þetta verður í fyrsta skipti sem sálfræðingur verður á staðnum fyrir dómara og það getur reynst mikilvægt og jafnvel nauðsynlegt til að stöðva blæðinguna sem fyrst, ef svo má að orði komast,“ sagði Jóhann.
Handbolti Mest lesið Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Íslenski boltinn Ólympíumeistari í bráðaaðgerð á hálsi Sport Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn ÓL í hættu: Hólmfríður Dóra brotnaði á æfingu Sport Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Íslenski boltinn Sjáðu mark Kristins frá miðju og hin sem skiluðu sextíu milljónum í kassann Fótbolti Freyr ekki hrifinn af „hrokafullum dómara“ Fótbolti Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ Enski boltinn Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Golf Fleiri fréttir Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Ýmir lenti í íslensku hakkavélinni og enn bíður Blær Skýrsla Ágústs: Ekki lengur reynslulausar „Þessi hópur getur orðið mjög góður en hann þarf tíma til að læra“ „Æðisleg tilfinning að sjá boltann í markinu“ Sjá meira