Lagið samið fyrir lambakjötsframleiðendur Kristjana Arnarsdóttir skrifar 8. júlí 2013 07:00 Pétur Jónsson hjá Medialux samdi lagið "Betri en þú“ fyrir þau Bógó og Lóló. Lagið er hluti af auglýsingaherferð karla- og kvennalandsliðanna í handknattleik. Fréttablaðið/valli "
Okkur fannst lagið bara eiga það skilið að eiga líf fyrir utan auglýsingaherferðina svo við slepptum því út á þetta internet sem allir eru að tala um," segir upptökustjórinn Pétur Jónsson, öllu þekktari sem Pedro hjá Medialux. Lagið "Betri en þú" í flutningi Sigríðar Thorlacius og Sigtryggs Baldurssonar hefur nú hljómað á öldum ljósvakans síðustu daga, en lagið var samið sem auglýsingalag fyrir lambakjötsframleiðendur. "Okkur var falið það verkefni að finna lag sem fjallaði um skemmtilegan kynjaríg. Ég fór því að leita að einhverju lagi sem væri þegar til en það var hvergi að finna. Við sömdum því bara nýtt lag," segir Pétur, en hann fékk Sigtrygg til að skrifa textann með sér. Lagið verður notað í auglýsingaherferð er snýr að karla- og kvennalandsliðunum í handbolta. Það eru í raun ekki Sigtryggur og Sigríður sem flytja lagið, heldur persónurnar Bógó og Lóló.Sigríður Thorlacius."Þetta eru þessar tvær týpur sem eru persónurnar í laginu. Bógó er væntanlega einhvers konar stytting á Bógomíl Font en Lóló hefur ekki verið til áður. Þau eiga augljóslega í einhvers konar erju-, ástar- og vináttusambandi," segir Sigríður, en í textanum skjóta þau Bógó og Lóló föstum skotum hvort að öðru. Spurð að því hvort Bógó og Lóló eigi eftir að syngja meira saman í framtíðinni segir Sigríður það alveg óráðið. "Ég veit það ekki. Það getur vel verið. Lóló er allavega alveg að stökkva ný fram á sjónarsviðið."
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Sjá meira