Ingólfur Júlíusson látinn 23. apríl 2013 09:59 Ingólfur Júlíusson ljósmyndari
Fréttaljósmyndarinn og margmiðlunarhönnuðurinn Ingólfur Júlíusson lést á sjúkrahúsi aðfaranótt mánudags, eftir hetjulega baráttu við bráðahvítblæði. Ingólfur fæddist 5. maí 1970 og ólst upp fyrstu árin í Syðra- Garðshorni í Svarfaðardal en síðan frá 5 ára aldri í Breiðholti. Hann var athafnasamur lestrarhestur á unglingsárunum, átti hesta og mótorhjól og spilaði í pönkhljómsveitum, Q4U meðal annarra. Hann var sjálfmenntaður þúsundþjalasmiður og fékkst við ótalmargt, en starfaði við flesta fjölmiðla á Íslandi frá árinu 1996, fyrst sem umbrotsmaður á blöðum og tímaritum, bæði fastráðinn og sem verktaki, síðan sem tökumaður fréttamynda í sjónvarpi. Ingólfur fór snemma að taka myndir fyrir blöð og varð ljósmyndun um síðir meginstarf hans, enda var hann afbragðsgóður ljósmyndari. Í nokkur ár starfaði hann sem ljósmyndari Reuters-fréttastofunnar á Íslandi og sjálfstætt frá árinu 2008. Myndir hans hafa farið um víða veröld og hann hlaut margvíslegar viðurkenningar, til dæmis var ein mynda hans meðal fréttamynda ársins hjá Reuters árið 2010 og árið 2011 var ein mynd hans valin sem ein af óvæntustu myndum ársins hjá tímaritinu Time. Hann hélt nokkrar ljósmyndasýningar og tók þátt í samsýningum. Einna þekktastar eru myndir Ingólfs frá eldgosum og öskufalli síðustu ára, en listrænar myndir urðu meira áberandi á síðari árum. Ingólfur fékkst við ýmislegt annað: myndbandagerð, tónlist, útskurð, fjallamennsku og sitthvað fleira, og árið 2011 tók hann myndir í bókina Ekki lita út fyrir, þar sem Eva Hauksdóttir skrifaði textann. Síðustu árin var hann mjög virkur með víkingafélaginu Einherjum og átti orðið gott safn af miðaldavopnum og verjum. Ingólfur var kvæntur Monicu Haug og eiga þau tvær dætur, Hrafnhildi og Söru.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira