Íslenski boltinn

Þægilegt hjá FH gegn KR

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðjón Árni tók við bikarnum í leikslok.
Guðjón Árni tók við bikarnum í leikslok. Mynd/Vilhelm
FH er meistari meistaranna eftir öruggan 3-1 sigur á KR í Egilshöll í kvöld. Íslandsmeistararnir virka vel stemmdir fyrir Íslandsmótið sem hefst eftir viku.

FH-ingar höfðu frumkvæðið frá upphafi og komust yfir eftir um hálftíma leik. Atli Guðnason fékk þá fína sendingu inn fyrir vörn KR frá Kristjáni Gauta Emilssyni og kom boltanum framhjá Hannesi Þór Halldórssyni í markinu.

Tíu mínútum síðar geystist besti maður Íslandsmótsins í fyrra upp kantinn og sendi fyrir þar sem Ólafur Páll Snorrason var mættur á fjærstöng og lagði boltann í netið. Tveggja marka forysta meistaranna og þannig var staðan í leikhléi.

Kristján Gauti fór af velli í hálfleik fyrir Brynjar Ásgeir Guðmundsson sem átti eftir að setja mark sitt á leikinn. KR-ingar reyndu að hressa sinn leik með því að skipta Þorsteini Má Ragnarssyni inn á fyrir Björn Jónsson en það hafði lítið að segja.

Atli Guðna fékk dauðafæri hjá FH-ingum snemma í síðari hálfleiknum en Bjarni Guðjónsson kom KR-ingum til bjargar. Hann gat hins vegar ekkert gert þegar Brynjar Ásgeir lék á hann og kom FH-ingum í 3-0 stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Uppaldi FH-ingurinn Emil Atlason minnkaði muninn fyrir KR skömmu síðar þegar Róbert Óskarsson, markvörður FH, missti fyrirgjöf Gary Martin út í teiginn. Martin fékk dauðafæri skömmu síðar og sömuleiðis varamaðurinn Albert Brynjar fyrir FH á hinum endanum en fleiri urðu mörkin ekki.

Guðjón Árni Antoníusson, nýskipaður fyrirliði FH-inga, tók því við fyrsta bikarnum í ár í búningi Hafnarfjarðarliðsins. Miðað við leikinn í kvöld og spár fróðra manna er ólíklegt að bikarinn verði sá síðasti sem bakvörðurinn lyftir í sumar.

FH-ingar hefndu því fyrir 2-0 tap í leik liðanna á sama vettvangi í fyrra. Þá skoraði Kjartan Henry Finnbogason bæði mörkin en óljóst er með þátttöku hans í sumar. Hólmar Örn Rúnarsson og Pétur Viðarsson eru frá vegna meiðsla hjá FH-ingum og munu sömuleiðis líklega missa af upphafi Íslandsmótsins.

Umfjöllun og viðtöl byggð á upplýsingum frá Fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×