Hátíðartónleikar í Gamla bíói 28. desember 2013 09:00 Moses Hightower Fréttablaðið/Anton brink
Hljómsveitirnar Moses Hightower, Ylja og Snorri Helgason hafa í sameiningu ákveðið að blása til hátíðartónleika milli jóla og nýárs. Tónleikarnir fara fram í Gamla bíói, í kvöld, þann 28. desember. „Tónleikarnir eru því tilvaldir til þess að jafna sig eftir jólaösina sem og til að hita sig upp fyrir nýtt ár,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, einn skipuleggjenda tónleikana. „Hljómsveitirnar munu skarta sínum skærasta í sérstökum hátíðarbúningi og lofa einstakri upplifun. Þess vegna verður að teljast mjög líklegt að eitt eða tvö jólalög fái að hljóma í meðförum sveitanna á tónleikunum,“ bætir Steinþór við. „Gamla bíó er líka einkar viðeigandi tónleikastaður fyrir kvöldstund sem þessa. Húsið hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga undanfarið en staðurinn skartar að margra mati besta tónleikasal landsins,“ útskýrir hann. Moses Hightower hafa notið mikillar velgengni undanfarin ár, og síðasta breiðskífa þeirra „Önnur Mósebók“ kom út í ágúst árið 2012, auk þess að vera valin plata ársins hjá Fréttablaðinu á síðasta ári hlaut sveitin Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötuna sem laga- og textahöfundar ársins. Auk þess hlaut sveitin Menningarverðlaun DV í tónlistarflokki fyrir sömu plötu. Nýlega kom út endurhljóðblönduð útgáfa af plötunni „Önnur Mosebók“ undir heitinu „Mixtúrur úr Mósebók” þar sem fjölmargir lögðu hönd á plóg. Hljómsveitin Ylja kom er tiltölulega ný en hefur hlotið mikla athygli. Lag þeirra Út klifraði hátt á Vinsældalista Rásar 2. Frumburður sveitarinnar, sem er samnefnd hljómsveitinni, kom út í nóvember á síðasta ári. Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur á undanförnum árum skapað sér gott orð í tónlistarheiminum bæði innanlands sem utan. Tónlist Snorra er nokkurs konar þjóðlagapoppbræðingur þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00 en húsið opnar klukkutíma fyrr.
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira