Vel heppnuð sameining við Álftanes Jakob Bjarnar skrifar 5. nóvember 2013 13:45 Gunnar Einarsson segir sameiningu Garðabæjar og Álftaness vel á áætlun og alls ekki íþyngjandi.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, hafnar því alfarið, sem að er látið að liggja í fréttaskýringu Morgunblaðsins, að sameining við Álftanes sé íþyngjandi fyrir sveitarfélagið og þannig misheppnuð.Morgunblaðiðgreinir frá því í morgun að rekstur og skuldastaða Garðabæjar sé mun verri en gert var ráð fyrir í greinargerð sem kynnt var vegna sameiningar Garðabæjar og Álftaness fyrir rúmlega ári. Hermt er að skuldir hins sameinaða sveitafélags eru um 1,8 milljörðum hærri en áætlað var og „í lok næsta árs verða þær orðnar 2,8 milljörðum hærri en greiningin sagði til um. Þá kemur fram í drögum að fjárhagsáætlun áranna 2014-2017 að rekstrarafgangur þessa árs og næsta verði töluvert lægri en spár höfðu gert ráð fyrir, eða sem nemur samtals 541 milljónum,“ segir í blaðinu. Fram kemur jafnframt að fyrir sameiningu Garðabæjar og Álftaness gerði ráðgjafarfyrirtækið R-3 skýrslu fyrir samstarfsnefnd sveitarfélaganna þar sem áhrif af sameiningu voru skoðuð, skýrsla sem svo, í ljósi þessa, reyndist kolröng. Gunnar Einarsson bæjarstjóri hafnar þessu alfarið í samtali við Vísi: „Í greinargerð R-3 er ekki gert ráð fyrir eins miklum fjárfestingum og við höfum farið í á árinu 2013 og svo ´14. Við höfum verið að fjárfesta á árinu 2013 fyrir 1,2 milljarð og í okkar áætlunum fyrir árið 2014 er þetta um 1,3 milljarður. Það er gert ráð fyrir miklu minni fjárfestingu í greinargerð R-3 og ekkert óeðlilegt við það því ákvarðanir um þessar fjárfestingar liggja ekki fyrir þegar greinargerðin er gerð,“ segir Gunnar. Bæjarstjórinn segir jafnframt að sem dæmi sé verið að taka ákvörðun um það núna fyrir árin 2014 til 2017 að byggja við einn skólann. „Síðan er náttúrlega eignarstaðan, miðað við þessar auknu skuldir, að sama skapi að batna. Það sem þó er mikilvægast og kemur alls ekki fram hjá Morgunblaðinu er að skuldahlutfallið er nánast nákvæmlega það sama og gert er ráð fyrir í greinargerð R-3 og ívið betra. Það er 105 prósent árið 2013 og mun fara niðrí alveg um hundrað prósent fyrir árið 2014. Það er hinn eiginlegi mælikvarði. Þannig að allt tal um að sameiningin hafi reynst íþyngjandi fyrir Garðabæ, það er bara ekki rétt.“Þannig að þú vilt meina að sameiningin sé á áætlun og kannski vel svo? „Jájájá. Og, við erum í mjög góðum málum hvað það allt varðar,“ segir Gunnar Einarsson.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Sjá meira