Pólitískar væringar í Rangarþingi ytra Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. nóvember 2013 07:00 Deilur eru innan hreppsnefndar Rangárþings ytra. Fulltrúar minnihlutans kröfðust þess á síðasta fundi, að Drífu Hjartardóttur sveitarstjóra yrði vikið frá störfum tímabundið. Fréttablaðið/GVA
Minnihlutinn í sveitarstjórn Rangárþings ytra lagði til á hreppsnefndarfundi síðasta föstudag að Drífu Hjartardóttur sveitarstjóra yrði vikið tímabundið frá störfum og ástæðan fyrir uppsögn starfsmanns á skrifstofu sveitarfélagsins verði rannsökuð. Oddviti minnihlutans segir pólitískar ástæður liggja að baki uppsögninni þar sem umræddur starfsmaður er varafulltrúi Á-listans. Meirihluti felldi þá tillögu. „Sveitarstjórinn sagði við mig á fundi að það væri ekki hægt að hafa kjörinn fulltrúa á skrifstofunni,“ segir Guðfinna Þorvaldsdóttir, oddviti Á-lista, sem hefur verið í minnihluta síðan meirihlutinn sprakk fyrir um ári. „Það er þetta sem við gerum athugasemdir við. Það má ekki segja fólki upp vegna pólitískra skoðana.“ Guðfinna segir einnig að starfsmaðurinn heyri undir skipulagsfulltrúa og hafi sveitarstjóri gengið fram hjá honum við uppsögn starfsmannsins. Að hennar sögn starfa að minnsta kosti þrír starfsmenn hjá sveitarfélaginu núna sem eru á framboðslista annaðhvort D- eða Á-lista. „Þetta sendir slæm skilaboð til hinna starfsmannanna.“ Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, oddviti D-lista, þvertekur fyrir það að pólitískur ásetningur hafi legið að baki uppsögninni. Hann vill í raun meina að engin raunveruleg uppsögn hafi átt sér stað þar sem um tilraunaverkefni hafi verið að ræða. „Það var farið í gang með verkefni sem stóð í eitt ár og því fylgdi tímabundin ráðning sem gilti til 31. október.“ Guðmundur segir málið notað til þess að efna til ófriðar. Guðfinna segist hins vegar aldrei hafa heyrt minnst á nokkurt tilraunaverkefni. „Það er einhver eftiráskýring,“ fullyrðir hún. „Þegar starfið var auglýst var lýst eftir starfsmönnum til að vinna í ár með möguleika á áframhaldandi ráðningu,“ útskýrir Guðfinna. Sveitarstjórn hafi síðan ákveðið að ráða einstaklinginn áfram og samþykkt að ráðningin gilti út árið 2013. „Þess vegna kom þetta eins og köld vatnsgusa í andlitið á honum að vera skyndilega sagt upp þegar gert er ráð fyrir starfinu á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.“ Hún segir að verkefnin sem starfsmaðurinn sinnti hverfi ekki og því sé ekki hægt að kalla þau tilraunaverkefni.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira