Neyðarsöfnun UNICEF Jakob Bjarnar skrifar 11. nóvember 2013 14:32 Hægt er að styrkja neyðarsöfnun UNICEF fyrir börn á Filippseyjum með því að senda sms-sið barn í númerið 1900 (við segjum það nítján, núll, núll) og gefa þannig 1.900 krónur,“ segir Sigríður Víðis.
Ástandið á Fillipseyjum er skelfilegt eftir að fellibylurinn Hayian gekk yfir eyjarnar og erfiðlega gengur fyrir björgunarsveitir að komast á staðina sem verst urðu úti. Í dag fer UNICEF af stað með neyðarsöfnun fyrir Filippseyjar en ástandið þar er skelfilegt. Sigríður Víðis Jónsdóttir er fjölmiðlafulltrúi UNICEF og hún segir að nú bíði menn ekki boðanna. Um sé að ræða stærsta fellibyl sem yfir eyjarnar hefur gengið, reyndar einn sá stærsti sem þekkist og neyðin mikil. „Yfir fjórar milljónir barna eru í neyð og þurfa hjálp – núna. Þá hjálp erum við að veita og ætlum að veita.“ Sigríður segir að biðlað verði til almennings hér á landi um að styrkja söfnunina. „Hægt er að styrkja neyðarsöfnun UNICEF fyrir börn á Filippseyjum með því að senda sms-sið barn í númerið 1900 og gefa þannig 1.900 krónur,“ segir Sigríður Víðis. Hún bendir einnig á að jafnframt megi leggja söfuninni lið á heimasíðu UNICEF með frjálsum framlögum. „Og þess utan þá fara framlög heimsforeldra á Íslandi beint í þessar neyðaraðgerðir núna. Það eru yfir 22 þúsund heimsforeldrar hér á landi og það eru þeir sem gera okkur kleyft að bregðast hratt og örugglega við.“ UNICEF var á staðnum áður en hamfarirnar áttu sér stað, eru þar nú og ætla að vera þar áfram en Haiyan er fjórði mesti fellibylur sem nokkurn tíma hefur mælst og 24. fellibylurinn sem gengur yfir Filippseyjar á árinu. Vindstyrkur í hviðum fór upp í 105 metra á sekúndu þegar verst lét. Talið er að allt að tíu þúsund manns hafi farist í borginni Tacloban einni saman og hundruð eða jafnvel þúsundir annarsstaðar. Hundruð þúsunda manna eru nú án húsaskjóls en fellibylurinn ruddi úr vegi íbúðarhúsum, skólum og heilum flugvelli. Á Fillipseyjum takast menn nú á við eftirmála hildarleiksins en veðrið er talið hafa haft áhrif á líf fjögurra milljóna manna með einhverjum hætti. Margir eru án matar og hreins drykkjarvatns. „Við fórum strax í það að senda þau hjálpargögn sem voru til staðar í landinu á vettvang. Þess utan erum við núna búin að gera klár 60 tonn af hjálpargögn sem eru á leiðinni á svæðið. Viðbrögðin nú snúast fyrst og fremst um það að veita lífsnauðsynlega aðstoð. Þá erum við að tala um nauðsynleg lyf, næringu, drykkjarvatn og hreinlætisgögn fyrir bæði börn og fjölskyldur,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir hjá UNICEF.
Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Er Trump að gefast upp á Pútín? Erlent Fleiri fréttir Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Sjá meira