Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkar Samúel Karl Ólason skrifar 20. nóvember 2013 10:38 Mynd/Pjetur Sigurðsson
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,6% í október og er það mesta hækkun í einum mánuði síðan í júní. Sú hækkun kemur vegna mikillar hækkunar á verði íbúða í sérbýli en hún var upp á 2,6% á milli mánaða. Talsverðar sveiflur hafa verið á verði sérbýlis á milli mánaða. Verð í fjölbýli lækkaði aftur á móti um 1,3% á milli mánaða. Þetta kemur fram í morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Á tólf mánuðum hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 7,9% að nafnvirði en um 4,1% að raunvirði. Það er mesta nafnverðshækkun húsnæðis yfir tólf mánaða tímabil sem mælst hefur síðan í mars 2012 og mesta raunverðshækkun síðan í desember 2011. „Raunverð húsnæðis hefur nú hækkað um 9,8% frá því að það stóð lægst eftir hrunið 2008, og er það nú álíka og það var undir lok árs 2004.“ Hækkunina undanfarið má meðal annars rekja til vaxandi kaupmáttar launa, fjölgunar starfa og leiðréttingar á skuldum heimilanna. Húsnæðisverð er þó enn um 29% lægra en þegar það var hæst fyrir hrun. Sömuleiðis hefur velta með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu aukist og á síðustu þremur mánuðum var 1.563 kaupsamningum um fasteignir þinglýst. Það eru 11,4% fleiri samningar en á sama tímabili í fyrra og var heildarveltan í þessum viðskiptum 49,7 milljarðar króna. „Vöxtur hefur verið í veltu með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu nær samfellt síðan í byrjun árs 2010 og var þinglýst 263% fleiri kaupsamningum með íbúðarhúsnæði á síðustu þremur mánuðum en á sama tíma 2009. Heildarveltan með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið um 294% á þessum tíma.“ Miklu skiptir fyrir fjárhag heimilanna í landinu hvernig íbúðaverð þróast. Markaðsvirði íbúðaeigna í landinu öllu er 3.263 milljarðar króna samkvæmt fasteignamati þjóðskrár og er um 125.700 íbúðir að ræða. „Heimilin eiga sjálf um 80% af þessum eignum, en um 20% eru í eigu lögaðila á borð við Íbúðalánasjóð, banka og leigufélög.“
Mest lesið Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Sjá meira