Alfreð með róttækar hugmyndir um heimsdeild í handbolta Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. júlí 2013 14:26 Nordic Photos / Getty Images
Alfreð Gíslason viðrar athyglisverðar hugmyndir um nýja ofurdeild í félagsliðahandbolta í samtali við þýska blaðið Spiegel í dag. „Mínar hugmyndir ganga út á að byggja upp heimsdeild út frá Meistaradeild Evrópu,“ er haft eftir Alfreð í blaðinu. „Ég er þess fullviss um að það sé hægt að finna styrktaraðila við hæfi og gera samninga um sjónvarpsrétt.“ Nú þegar er til heimsmeistarakeppni félagsliða sem heitir Super Globe og er skipulögð af IHF, Alþjóðahandknattleikssambandinu. Alfreð hugnast þó betur að láta EHF, Handknattleikssamband Evrópu, skipuleggja heimsdeildina út frá velgengni Meistaradeildarinnar. „Það væri vandræðalaust að finna sterkt lið í Arabíu,“ segir Alfreð og horfir sérstaklega til Katar. Einnig bendir hann á egypsku höfuðborgina Kaíró þar sem væri hægt að finna fulltrúa frá Afríku, lið frá Buenos Aires í Argentínu sem og frá Suður-Kóreu. Deildinni fylgdu stóraukin ferðalög fyrir liðin sem myndu taka þátt en það ætti ekki að vera nein fyrirstaða. „Liðin myndu þá fara í lengri útileikjareisur, líkt og þekkist vel í NBA-deildinni.“ Þetta væri þó ekki mögulegt nema að breyta fyrirkomulaginu í þýsku úrvalsdeildinni. „Þýsku liðin ættu ekki að spila í deildinni heima fyrr en undir lok tímabilsins. Það yrði átta liða úrslitakeppni þar sem fjögur efstu liðin í deildinni myndu keppa við þau fjögur lið sem hefðu spilað í heimsdeildinni.“ Ólíklegt er að slíkar hugmyndir myndu leggjast vel í forráðamenn þýsku úrvalsdeildarinar og IHF.
Handbolti Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira