Gleymdi lyklum og sparkaði í húsið sitt 2. nóvember 2013 11:27 Lögreglumenn á Twitter-vaktinni í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegu tíst-maraþoni í gærkvöld og nótt, og tístaði frá kl. 18 í gær til kl. 6 í morgun. Nóg var um að vera á vaktinni og fjölmörg mál komu á borð lögreglu. Þar af voru allnokkur fíkniefnamál og að vanda voru margar tilkynningar vegna hávaða í heimahúsum þegar fór að líða á nóttina. Sextán voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á þessum hálfa sólarhring, og það verður það að teljast ansi mikið. Lesa mátti um tugi verkefna á twitter-síðu lögreglunnar í gærkvöld og nótt. Hún sendi út rúmlega 150 tíst á tímabilinu, en allmörg þeirra voru svör við ummælum þeirra sem voru að fylgjast með. Þeim sem fylgjast með lögreglunni á Twitter fjölgaði annars nokkuð við maraþon-tístið, en tæplega 5.000 manns fylgjast nú með störfum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Twitter. Að tístinu stóðu hinir sömu og halda úti fésbókarsíðu embættisins, en tilgangurinn með þessu er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglunnar og hversu fjölbreytt verkefni hún fæst við. Þess má geta að um 300 lögreglulið víðsvegar í heiminum tóku þátt í þessu alþjóðlega tísti, og er það um helmingsfjölgun lögregluliða frá því að samskonar tíst var haldið í mars á þessu ári. „Oftar en ekki kom ölvun eða fíkniefnaneysla við sögu í málum næturinnar. Hvort það átti við um konuna sem lögreglan aðstoðaði í austurborginni í nótt skal hins vegar ósagt látið. Hún var að sparka í hús þegar lögreglan kom á vettvang, en eftirgrennslan leiddi í ljós að konan átti sannarlega heima í umræddu húsi. Hún vildi eðlilega komast inn til sín, en fann ekki húslykilinn og ákvað því að sparka í húsið. Það skilaði auðvitað engum árangri og varð aðeins til þess að pirra nágrannana. Við hjálpuðum henni að finna húslykilinn á augabragði og allt fór vel, en hætt er við að konunni verði illt í fætinum þegar hún vaknar í dag,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira