Býr til franskt draumaheimili Marín Manda skrifar 28. júní 2013 18:00 Lilja Björk Birkisdóttir endurgerir gamla muni og gefur þeim nýtt líf. Mynd/Arnþór Birkisson "
Ég hef alltaf heillast rosalega mikið af þessum stíl frá því að ég var unglingur en ég sá fyrir mér í einhverjum draumi að mig langaði að eiga svona heimili einhvern tímann. Svo fluttum við í stærra húsnæði og mig vantaði húsgögn til að fylla upp í plássið og byrjaði því af fullum krafti að endurgera mublur,“ segir Lilja Björk Birkisdóttir.Lilja Björk Birkissdóttir Franska LiljanÞað má vera að heimilið sé þar sem hjartað er en þegar maður er skapandi þá er aldeilis ekki sjálfgefið að rölta út í búð og kaupa nákvæmlega þau húsgögn sem maður leitar að. Hjá Lilju Björk er hugmyndaflugið til staðar og áhuginn fyrir hönnun og húsgögnum með frönsku ívafi er svo mikill að hún ákvað sjálf búa til franska stemningu fyrir sitt draumaheimili. Lilja Björk heldur úti Facebook-síðunni Franska Liljan þar sem hún deilir ýmsum verkefnum og aðferðum með áhugasömum. Hún segir viðbrögðin hafa verið einstaklega góð. Jafnvel karlmennirnir fjórir á heimilinu hvetja hana til dáða þrátt fyrir að heimilið sé orðið heldur kvenlegra en áður fyrr. „Maður verður að hafa augun opin. Stundum kaupi ég einhver húsgögn í Góða hirðinum eða á Bland.is því mér líst vel á þau en svo hef ég ekki endalaust pláss og sel þá hluti sem ég hef verið að gera upp. Þetta er svolítið tímafrekt þegar maður er að leita að réttum hlutum og getur stundum verið svolítið erfitt,“ segir Lilja Björk og bætir við að hún sé heimavinnandi og hafi því nægan tíma til að dunda í þessu. Húsgagnamálun segist hún ekki hafa sérstaklega lært nema í gegnum bækur og annað efni sem hún hefur verið að rýna í af miklum ákafa. Múrbúðin hefur oftar en ekki orðið fyrir valinu þegar kaupa á málningu eða grunn og segist Lilja Björk hafa verið að prófa sig áfram með alls kyns uppskriftir að kalkmálningu. „Ég nota mikið hvíta Meistaragrunninn. Svo nota ég svarta matta veggmálningu og mála alltaf kantana eða alla mubluna með henni og hvíta grunninn ofan á til að fá þetta dökka slit þegar maður pússar, það finnst mér svolítið flott.“ „Maður verður að hafa augun opin. Stundum kaupi ég einhver húsgögn í Góða hirðinum eða á Bland.is því mér líst vel á þau en svo hef ég ekki endalaust pláss og sel þá hluti sem ég hef verið að gera upp. Þetta er svolítið tímafrekt þegar maður er að leita að réttum hlutum og getur stundum verið svolítið erfitt,“ segir Lilja Björk og bætir við að hún sé heimavinnandi og hafi því nægan tíma til að dunda í þessu. Húsgagnamálun segist hún ekki hafa sérstaklega lært nema í gegnum bækur og annað efni sem hún hefur verið að rýna í af miklum ákafa. Múrbúðin hefur oftar en ekki orðið fyrir valinu þegar kaupa á málningu eða grunn og segist Lilja Björk hafa verið að prófa sig áfram með alls kyns uppskriftir að kalkmálningu. „Ég nota mikið hvíta Meistaragrunninn. Svo nota ég svarta matta veggmálningu og mála alltaf kantana eða alla mubluna með henni og hvíta grunninn ofan á til að fá þetta dökka slit þegar maður pússar, það finnst mér svolítið flott.“
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fleiri fréttir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Sjá meira