WOW air formlega orðið flugfélag Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 29. október 2013 15:48 Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, ásamt Birni Inga Knútssyni, framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs, með flugrekstrarleyfið.
WOW air tók formlega við flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu í dag og er því formlega orðið flugfélag. Um 30 ár eru liðin síðan flugrekstrarleyfi var veitt félagi sem stundar áætlunarflug til og frá Íslandi og segir í tilkynningu frá WOW air að leyfið sé liður í því að styrkja og byggja upp rekstur fyrirtækisins. Litið sé á það sem lykilatriði fyrir áframhaldandi vöxt WOW air að fljúga undir eigin flaggi, og að það gefi félaginu meiri stjórn á öllum rekstri sem sé þá ekki háður öðrum flugrekstraraðila. WOW air fór í jómfrúarflug sitt árið 2012 og á síðasta ári tók fyrirtækið yfir flugrekstur Iceland Express. „Samgöngustofa lýsir ánægju sinni með að nýtt íslenskt flugfélag skuli nú hafa fengið heimild til flugreksturs,“ segir Hermann Guðjónsson hjá Samgöngustofu. „Því fylgja ákveðnar skyldur og ábyrgð en einnig virðisauki fyrir íslenskt samfélag í formi ýmissa starfa tengdum flugrekstrinum. Samgöngustofa óskar nýjum rekstraraðilum góðs gengis í starfseminni og vonast eftir góðu og gifturíku samstarfi.“ WOW air réði á dögunum níu flugmenn og eru fleiri sagðir bætast í hópinn á næstu mánuðum. Með tilkomu flugrekstrarleyfisins verða flugmenn félagsins starfsmenn WOW air. „Ég er fyrst og fremst þakklátur öllu því kraftmikla fólki sem starfar hjá WOW,“ segir Skúli Mogensen, stofnandi WOW air. „Einnig er ég þakklátur fyrir þær frábæru móttökur sem við höfum fengið frá íslensku þjóðinni frá fyrsta degi.“
Mest lesið Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Sjá meira