Erlent

Kaupmannahöfn: Nær 100 kíló af kókaíni í bananakössum

Lögreglan í Kaupmannahöfn segir að nær 100 kíló af hvítu dufti sem fundust  í bananakössum í vöruhúsi Coops í Bröndby í morgun séu að öllum líkindum kókaín en verið er að ganga úr skugga um það á rannsóknarstofu.

„Þetta er mjög stór sending eða allt að 100 kíló. Við göngum útfrá að um kókaín sé að ræða eða að minnsta kosti sterkt fíkniefni,“ segir Bent Isager rannsóknarlögreglumaður í samtali við Ekstra  Bladet.

Fram kemur í frétt blaðsins að fyrir aðeins viku síðan fannst mikið magn af hvítu efni í bananakössum frá Kólombíu þegar þeir komu í vöruhús Coop í Hasselager í nágrenni Árósa.

Kókaínið í morgun fannst þegar starfsmaður vöruhússins var að flytja bananakassana til og fannst þeir vera óvenju þungir. Við nánari skoðum fann hann fjölda poka með hvítu dufti og kallaði lögregluna til.

Talsmaður Coop segir að sá sem flytur inn bananana fyrir Coop sé stórhneykslaður á þessu máli og er sjálfur að kanna það nánar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×