Gylfi Arnbjörnsson: Meirihlutinn réð Stefán Árni Pálsson skrifar 31. desember 2013 09:46 Gylfi Arnbjörnsson. mynd / vilhelm
Í meðfylgjandi grein svarar Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ aðdróttunum Aðalsteins Baldurssonar formanns Framsýnar á Húsavík vegna nýgerðra kjarasamninga. Hér að neðan má lesa bréf Gylfa til Aðalsteins sem birtist á vef Alþýðusambandi Íslands í gærkvöldi: Sæll vertu Aðalsteinn og takk fyrir bréfið. Mér er bæði ljúft og skylt að svara þínum spurningum. Þú furðar þig á því að við sem skipum Samninganefnd ASÍ höfum haldið áfram að þrýsta á viðsemjendur okkar og leita leiða til þess að ná samkomulagi, þegar þú segir: ,,Er von að spurt sé hvað á forsetinn við með því að segja að við, fimmmenningarnir, hefðum átt að vita betur í nóvember? Svaraðu því, Gylfi Arnbjörnsson, án þess að vera með yfirklór og ósannindi.‘‘ Þessu er auðvelt að svara. Í lok nóvember kynnti formaður Starfsgreinasambandsins fyrir samninganefnd SGS hvaða lending yrði líklegust í viðræðum við atvinnurekendur og veit ég ekki betur en að á þeim fundi hafi formaðurinn fengið umboð til þess að halda áfram að vinna að lausn á þeim nótum. Nú veit ég ekki hverjir greiddu atkvæði gegn þeirri tillögu, en meirihlutinn var afgerandi. Það er merkilegt að þú skulir vera búinn að gleyma þessu Aðalsteinn, því upplýsingarnar voru a.m.k. nógu fljótar að rata í fjölmiðla. Í byrjun desember þegar átti að reyna að ljúka samningum en þá kom í ljós að SA var ekki tilbúið að samþykkja krónutöluleiðina fyrir þá tekjulægstu og sleit þá Samninganefnd ASÍ viðræðum og fljótlega í kjölfarið vísaði SGS deilu sinni til Ríkissáttasemjara. Engu að síður vildu aðildarsamtökin að áfram yrði reynt að þrýsta á atvinnurekendur og kom það m.a. fram í viðtali við mig sem birt var á heimasíðu SGS, þar sem fram kom að ekki væri ólíklegt að til tíðinda myndi draga. Ég verð að viðurkenna, kæri Aðalsteinn, að ég skil ekki hvernig þú gast misst af þessu öllu saman? En það verður þú að eiga við sjálfan þig. Ég get hins vegar vel skilið gremju þína varðandi breytingarnar á tekjuskattinum. Það er engin launung á því að innan ASÍ varð samkomulag um að ráðstafa hluta af því svigrúmi til launabreytinga sem næðist fram til þess að hækka lægstu laun hlutfallslega meira en hjá millitekjuhópunum. Þetta samkomulag byggði m.a. á því að þrýsta á ríkisstjórnina um breytingar á þeirra skattalækkun sem boðuð var í fjárlagafrumvarpinu í október, þar sem lækka átti skattbyrði þeirra sem eru með yfir 780 þús.kr. á mánuði mest. Fjármálaráðherra hafði hafnað þeirri leið að hækka skattleysismörkin, þó forsætisráðherra hafi vissulega ljáð máls á því. Því varð að samkomulagi innan okkar raða að leggja áherslu á að hækka mörkin milli lægsta og milliþrepsins úr ríflega 240 þús.kr. í 350 þús.kr. Það er rétt að minna þig á þá staðreynd, að samkvæmt kjarakönnunum innan SGS eru sem betur fer er einungis 15-20% af félagsmönnum Starfsgreinasambandsins með tekjur undir 250 þús.kr. þannig að yfirgnæfandi fjöldi þeirra hefði notið meiri ábata af tillögu ASÍ en tillögu ríkisstjórnarinnar. Þegar ljóst var að samninganefndin náði ekki settu marki varðandi hækkun lægstu launa í viðræðum við SA var breið samstaða um að breyta þessari skattatillögu og lögðum áherslu á það við ríkisstjórnina, að færa mörkin í 295 þús.kr. og hækka persónuafsláttinn um kr. 1.000. Þetta átti að koma til viðbótar við árlegar verðbætur á persónuafsláttinn sem ASÍ samdi um árið 2006. Ríkisstjórnin samþykkti hækkun markanna í 290 þús.kr. en hafnaði að hækka persónuafsláttinn. Þetta var auðvitað vond niðurstaða, en hér þurfti að taka afstöðu til þess hvort við áttum að slíta viðræðum og ná ekki fram þessari breytingu á áformum ríkisstjórnarinnar að einskorða skattalækkunina við þá allra tekjuhæstu eða undirbúa hreyfinguna til harðra átaka í janúar. Samninganefndir allra aðildarsamtakanna ákváðu að ganga til samninga. Það er athyglisvert að þú beinir ávalt gagnrýni þinni að mér persónulega en samt veistu vel þegar þessi ákvörðun var tekin hafði ég ekki atkvæðisrétt þó ég hafi vissulega verið sammála niðurstöðunni . Það er aftur á móti einkennandi fyrir málflutning þinn, ágæti Aðalsteinn, og ykkar félaganna að skilgreina ykkar afstöðu sem hina einu réttu – að þið hafið einkaleyfi á því að túlka vilja félagsmanna – og því hafi formenn þeirra félaga sem telja um 96% af félagsmönnum ASÍ sem ákváðu að fara þessa leið einfaldlega rangt fyrir sér. Að það séu þeir sem rjúfi samstöðuna um ykkar hugmyndir. Ef við erum þeirrar skoðunar að lýðræði eigi að ráða í okkar mikilvægu hreyfingu getur það ekki gengið að lítill minnihluti ráði niðurstöðunni. Að sama skapi er það algerlega skýr réttur þeirra félaga, sem ekki vilja fara eftir niðurstöðu meirihlutans að afturkalla umboðið og fara sínar eigin leiðir. Það að gera það ekki var ykkar niðurstaða og því er þessi samningur jafn mikið á ykkar ábyrgð eins og þeirra sem hann undirrituðu. Varðandi þau ummæli mín að ef kröfugerð SGS hefði mótað niðurstöðuna hefði almenna launahækkunin orðið umtalsvert meiri, þá er því til að svara að í kröfugerð SGS var gert ráð fyrir 7% almennri launahækkun auk 20.000 kr. hækkunar á launatöxtum og flokkatilfærslum. Sem betur fer er það ekki óþekkt innan raða SGS, að félagsmenn séu ,,yfirborgaðir‘‘ og því verður sambandið einnig að huga að almennri launahækkun. Það þarf ekki mikla þekkingu til að sjá að 7% almenn hækkun leiðir til þess að krónutöluhækkun þeirra sem eru með dagvinnulaun yfir 300 þús.kr. verður meiri en hækkun taxta og enn meiri meðal hæstu launa en ef viðkomandi hópar fá 2,8% hækkun. Því veit ég ekki hverju þú ert að mótmæla við ummæli mín? Varla ertu að afneita eigin kröfugerð? Að lokum kvartar þú yfir því að ég ástundi þá iðju að ,,skvetta bensíni á eldinn‘‘. Ég held að nær væri að þú litir í eigin barm kæri félagi. Þessi framganga ykkar og rógburður hefur gengið gjörsamlega fram af mér, nú er mál að linni. Ég hef alla tíð lagt mikla áherslu á það í starfi mínu að tala við félaga mína og hlusta eftir því hvert okkar mikilvæga hreyfing vill fara. Ég hef reglulega farið um landið og fundað með stjórnum allra aðildarfélaga ASÍ. Í aðdraganda kosninganna í vor fórum við í sérstaka fundarherferð um landið, þar sem hlustað var á grasrótina auk þess sem hugmyndir okkar í aðdraganda kjarasamninga voru ræddar. Þegar farið er yfir kröfugerðir aðildarsamtaka ASÍ kemur í ljós mikill samhljómur í hreyfingunni. Sá samhljómur á lítið skylt við þá leið sem þú og þínir félagar viljið fara. Þess vegna er niðurstaðan sú sem nú liggur á borðinu. Meirihlutinn réð.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira