Lífið

Fimmta afabarnið kallað Chanel No.5

Drew Barrymore og Will Kopelman
Drew Barrymore og Will Kopelman AFP/NordicPhotos
Drew Barrymore á von á stúlku. Leikkonan staðfesti í gær að hún og eiginmaður hennar, Will Kopelman eigi von á dóttur, þegar hún tók á móti verðlaunum sem nýliði ársins á Beauty Inc verðlaunahátíðinni.

Barrymore, sem er 38 ára gömul sagði,

„Ég er svo stolt af því að taka við þessum verðlaunum til heiðurs konum, dóttur minni og dótturinni sem ég á von á,“ sagði Barrymore, en hún á fyrir 14 mánaða dóttur. Sú heitir Olive.

Drew Barrymore og eiginmaður hennar Will Kopelman giftu sig í júní síðastliðnum, en Barrymore klæddist Chanel-brúðarkjól eftir Karl Lagerfeld. Faðir Kopelmans er nefnilega fyrrum stjórnarformaður Chanel, Arie Kopelman. Arie er þegar sagður vera kominn með gælunafn á ófædda stúlkuna, en hún verður fimmta afabarn hans og verður því kölluð Chanel No. 5.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×