Innlent

Helstu pistlahöfundar eru konur - Topp tíu listi yfir vinsælustu greinarnar

Jakob Bjarnar skrifar
mynd/shutterstock
„Kjánar telja að það sem frægir höfundar skrifa sé aðdáunarvert. En fyrir mína parta; ég les aðeins sjálfum mér til ánægju og mér finnst aðeins það gott sem rímar við minn eigin smekk,“ segir í Birtingi Voltaires. Og, mikið til í því: Fólk les oftar en ekki skoðanaríkan texta til að staðfesta og styrkja sínar eigin skoðanir. En, þeir ættu að hafa hugfast það sem William Blake benti á: „Sá sem aldrei skiptir um skoðun er eins og staðið vatn og það elur aðeins af sér steinrunnar hugsanir.“

Víst er að enginn skortur er á skoðunum; talsvert miklu meira framboð en eftirspurn. Mark Zuckerberg og Twitter-menn gera beinlínis út á þetta framboð með samfélagsmiðlum sínum: Notendur leggja til efnið en þeir selja auglýsingarnar. En, meðfylgjandi er listi yfir greinar sem birtust í Fréttablaðinu og Vísi á árinu sem er að líða og vöktu mikla athygli. Þetta geta verið aðsendar greinar sem og pistlar frá föstum pennum. Engin afstaða til þeirra skoðana sem komast á Topp 10 lista yfir skoðanir ársins er að baki þessari samantekt heldur ræður einfaldlega það hvaða pistlar voru mest lesnir af gestum Vísis. Og þá kemur í ljós að það eru greinar eða pistlar eftir konur sem tróna þar á toppi lista – reyndar komast ekki nema þrír karlar á Topp tíu lista yfir mest lesnu greinarnar.

1.    Orðsending til íslenskra karlmanna –Hrafnhildur Ragnarsdóttir

Þessi grein, sem birtist í nóvember og er eftir stjórnarkonu í kvenréttindafélagi Íslands, reyndist mjög umdeild. Hátt í 300 athugasemdir voru skrifaðar við greinina og athugasemdir við athugasemdirnar. Greinin fjallar um þann ótta sem greinarhöfundur segir að konur búi almennt við: „Þetta er minn heimur en þú þekkir hann víst ekki neitt. Samt skapaðir þú hann ásamt bræðrum þínum. Þú ert í raun mín ógnarstjórn.“

2.    Kæri runkari –Fanney Birna Jónsdóttir

Númer tvö er pistill eftir fastan pistlahöfund og starfsmann Vísis og er að einhverju leyti efnislega skyldur þeim pistli sem trónir á toppnum þannig að fyrir liggur að lesendur eru áhugasamir um frásagnir sem þessar. Pistillinn birtist í þessum mánuði og fjallar um þá reynslu pistlahöfundar að hafa gengið fram á mann sem sat í Benz-bíl sínum, fróaði sér og þá þannig að pistlahöfundur komst ekki hjá því að sjá. „En síðan fóru að renna á mig tvær grímur; hvað ef þessi aumkunarverða sýning er ekki nóg fyrir þig? Hvað gerir þú næst? Er mér óhætt að halda áfram að labba ein heim? Eða var það kannski aldrei í lagi? Þarna hætti ég að hlæja.“

3.    Vonlaus blaðamennskaLilja Magnúsdóttur

Númer þrjú er aðsend grein, opið bréf til Mikaels Torfasonar frá fagstjóra og kennara íslensku í MK og birtist hún seint í október. Lilja var ekki par ánægð með leiðara Fréttablaðsins sem Lilja telur hið mesta bull og hún les Mikael pistilinn: „Það skýtur skökku við að hæla Jóni Gnarr og tala síðan eins og brottfall sé fötlun. Kæri Mikael, vissir þú að nemandi sem ákveður að hætta námi í Borgarholtsskóla og færa sig yfir í FB telst brottfall?“

4.    Mamma þín dó í nóttOddrún Lára Friðgeirsdóttir

Um er að ræða athyglisverða og hjartnæma grein sem birtist í september og eftir leiðbeinanda í leikskóla. Oddrún Lára ritar um veikindi móður sinnar sem var geðveik og þá reynslu að vera vakin 14 ára gömul við þá tilkynningu að hún væri dáin. Greinin er ákall um vitundarvakningu; að rætt verði opinskátt um geðræn veikindi. „Þessa nótt tók hún ekki þá sjálfselsku, meðvituðu ákvörðun um að yfirgefa börnin sín. Hennar veikindi, vanlíðan, hennar sjúkdómur varð þess valdandi að hún dó.“

5.    Borg í formalíniDóri DNA

Pistillinn er Bakþanki Dóra sem birtist um mitt sumar en þar sem komið er inn á hina miklu deilu sem stóð og staðið hefur yfir um skemmtistaðinn Nasa. Dóri telur hana á villigötum: „Um hvað nákvæmlega snýst baráttan um Nasa? Snýst hún um húsið sjálft eða starfsemina sem er þar inni? Það er algjörlega borðleggjandi að þessi starfsemi mun finna sér nýjan vettvang.“

6.    Ég og frændi minnKristófer Sigurðsson

Unglæknirinn Kristófer skrifaði grein sem birtist í upphafi árs og vakti mikla athygli. Þar tók hann dæmi af sjálfum sér og ungum frænda sínum sem hætti strax eftir skylduna. Í fyrstu virðist Kristófer talsvert betur settur en eftir því sem höfundur reiknaði lengur þeim mun betur leit dæmið út fyrir hinn unga frænda. „Það sem ég hef fram yfir frænda í launum frá því að ég útskrifast úr læknadeild og þar til ég klára sérnámið dugar ekki fyrir námslánunum mínum.“

7.    Bless, Sigmundur DavíðSaga Garðarsdóttir

Saga Garðarsdóttir leikkona er ein af Bakþankahöfundum Fréttablaðsins og hún tók upp á því að skrifa bréf til forsætisráðherra sem nutu nokkurrar athygli. Í þessum pistli, sem birtist í nóvember, er farið að síga í höfund því hann fær aldrei neitt svar, en þannig hefst pistillinn þessi: „Einu sinni átti mamma mín leiðinlegan pennavin sem hún nennti ekki að skrifast á við lengur, svo hún skrifaði honum bréf með vinstri hendinni sem vinkona sín og sagðist sjálf hafa látist í bílslysi.“

8.    Til þeirrar sem sagði að ég þyrfti að passa fituprósentunaTara Margrét Vilhjálmsdóttir

Tara Margrét er meistaranemi í félagsráðgjöf og efni aðsendrar greinar hennar, sem birtist í janúar, kemur ágætlega fram í skilmerkilegri fyrirsögninni. Vel á fimmta þúsund smelltu á „læk-hnappinn“ og voru þeir sem settu inn athugasemd almennt þeirrar skoðunar að þarna væri þarft mælt. „Þetta kvöld varð ég fyrir dæmigerðum fitufordómum. Þeir sem láta þá í ljós réttlæta gjörðir sínar með því hugarfari að viðkomandi eigi fordómana skilið. Þess vegna eru fitufordómar jafn algengir og raun ber vitni, jafnvel á Íslandi.“

https://img.visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20131207&Category=PROFILE&ArtNo=131209237&Ref=V1&NoBorder
9.    Er Sigmundur Davíð lærdómur okkar af hruninu?Jón Kalmann Stefánsson

Einn af okkar allra fremstu rithöfundum skrifaði ádrepu í miðri kosningabaráttunni í apríl sem vakti mikla athygli. Og voru þeir rúmlega fimm þúsund sem mæltu sérstaklega með greininni. Þar er þung undiralda og gremja höfundar leynir sér hvergi; honum þykir gullfiskaminni kjósenda og frambjóðenda með ósköpum. „Þegar þessar línur eru skrifaðar, virðast enn þá líkur á samsteypustjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins – sem er gamalkunnug hljómsveit. Undanfarnar vikur hefur formaður Framsóknar, Sigmundur Davíð, ekki sparað loforðin um miklu betri músík, að það verði dansað komist hann til valda, að þessi þjakaða þjóð sjái loksins til sólar – flokkurinn siglir enda með himinskautum og mælist með metfylgi.“

https://img.visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20131207&Category=PROFILE&ArtNo=131209237&Ref=V2&NoBorder
10.    Eigum við að leggja niður Landspítalann?Lilja Guðlaug Bolladóttir

Lilja Guðlaug er hjúkrunarfræðingur og hún skrifaði grein sem birtist í september. Greinin er löng og fjallar um ófremdarástand í heilbrigðismálum, en málefni Landspítalans hafa sannarlega brunnið á landsmönnum þetta árið. „Landspítalinn í núverandi mynd er fjársvelt stofnun sem fúnkerar sem heilsugæsla, hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir aldraða og allt þar á milli.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×