Ballið búið hjá Þóri og norsku stelpunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2013 20:56 Þórir Hergeirsson þurfti að sætta sig við svekkjandi tap í kvöld. Katrine Lunde varði vel en það var ekki nóg. Mynd/AFP
Norska kvennalandsliðið í handbolta er úr leik á HM í Serbíu eftir þriggja marka tap á móti heimastúlkum í átta liða úrslitunum í kvöld. Dönsku stelpurnar verða fulltrúar Norðurlanda í undanúrslitunum eftir sigur á Þjóðverjum. Noregur spilar ekki um verðlaun á stórmóti í fyrsta sinn síðan að Þórir Hergeirsson tók við liðinu eftir 25-28 tap á móti Serbíu í kvöld. Noregur er ríkjandi heimsmeistari og norsku stelpurnar voru búnar að vinn fjórtán HM-leiki í röð fyrir leikinn. Norska kvennalandsliðið vann þrjú gull, eitt silfur og eitt brons á fyrstu fimm stórmótum sínum undir stjórn Þóris. Norska liðið byrjaði leikinn vel og komst meðal annars í 5-2 og 11-6. Noregur var síðan 16-15 yfir í hálfleik og náði fimm marka forskoti með því að skora fjögur fyrstu mörk seinni hálfleiksins. Þá fór allt í baklás hjá norska liðinu sem skoraði ekki mark í tólf mínútur og á meðan breyttu Serbar stöðunni úr 16-21 í 23-21. Serbar héldu frumkvæðinu síðan út leikinn og tryggðu sér frábæran sigur. Sanja Damnjanović og Dragana Cvijić skoruðu báðar átta mörk fyrir Serbíu en Heidi Löke var með fimm mörk fyrir Noreg. Danmörk vann 31-28 sigur á Þjóðverjum eftir að staðan var 17-17 í hálfleik. Dönsku stelprunar tryggðu sér sigur með frábærum endaspretti en þær unnu síðustu átta mínúturnar 7-2 þar sem Trine Östergaard Jensen skoraði fjögur af sex mörkum sínum í leiknum. Kristina Kristiansen var markahæst með sjö mörk úr átta skotum. Í undanúrslitunum á föstudaginn mætast Brasilía og Danmörk annarsvegar og Pólland og Serbía hinsvegar. Brasilía og Pólland hafa aldrei áður komist svona langt og Serbía er í undanúrslitunum í fyrsta sinn síðan 2001.
Handbolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fótbolti Fleiri fréttir Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Sjá meira