Leigjendur fá leiðrétt og líka þeir sem seldu fasteignina Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. desember 2013 13:45
Öllum verðtryggðum lánum sem leiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar nær til verður skipt í tvo greiðsluhluta. Leiðréttingarhluti lánsins verður keyptur af ríkissjóði. Um það bil 31.000 heimili á leigumarkaði fá einnig leiðréttingu þar sem heimilt verður að setja skattfrjálsa úttekt séreignasparnaðar á sérstakan íbúðarsparnaðarreikning. Þá fá þeir sem seldu fasteignina sína eftir tímabil forsendubrestsins eða skuldbreyttu lánum sínum einnig leiðrétt. Leiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar sem kynnt var um helgina mun koma til með að kosta 150 milljarða króna. Það er staðreynd að helmingur leiðréttingarinnar, um 80 milljarðar króna, verður greiddur af ríkissjóði með skatttekjum sem dreifast yfir fjögur ár. Um verður að ræða hækkun á sérstökum skatti á banka og fjármálafyrirtæki í slitameðferð.Verðtryggðum lánum skipt upp í tvo hluta Hvernig verður þetta gert? Verðtryggðum fasteignalánum heimilanna verður skipt upp í tvo hluta. Frumlán og leiðréttingarlán. Leiðréttingarlánið er sá hluti lánsins sem verður felldur niður, að hámarki fjórar milljónir króna. Lántakendur munu ekkert greiða af leiðréttingarlánunum á árunum 2014-2017. Greiðslubyrði lækkar strax á næsta ári þegar lánum verður skipt upp. Ekki eru greiddir vextir, verðbætur eða afborganir af leiðréttingarhluta lánsins. Leitað verður heimildar í fjárlagafrumvarpi næsta árs til að greiða 20 ma.kr. til uppkaupa á einum fjórða leiðréttingarlána af Íbúðalánasjóði, lífeyrissjóðunum og bönkunum. Sams konar heimildar verður verður leitað í fjárlagafrumvörpum áranna 2015, 2016 og 2017. Við skulum kíkja á dæmi um leiðréttingu: Lán var 22,5 milljónir króna fyrir niðurfærslu. Niðurfærslan nemur rúmlega 2,9 milljónum króna, sem verður leiðréttingarlán sem verður keypt af ríkissjóði, en staða láns eftir niðurfærslu verður frumlán, 19,5 milljónir króna. Afborgun af höfuðstól lánsins verður 27.275 krónur í stað 31.117 króna áður. Vextirnir verða 67.627 krónur í stað 77 þúsund króna og afborgun verður 94.902 krónur í stað 108.958 króna.Hvað með þá einstaklinga sem seldu fasteignir sínar eftir tímabil forsendubrestsins? „Aðalatriðið varðandi beinar niðurfærslur er að allir þeir sem voru með verðtryggð lán á þessu tímabili frá 2007-2010 fá leiðréttingu. Ef þeir seldu á tímabilinu þá verður leiðréttingin bara hlutfallsleg, eða tekur mið af því. En allir þeir sem fengu áfallnar verðbætur umfram viðmiðið þeir fá það endurgreitt,“ segir Sigurður Hannesson formaður sérfræðingahópsins um höfuðstólslækkun verðtryggðra fasteignalána.Þannig að þeir sem hafa endurfjármagnað lán sín eða skuldbreytt þeir falla þar undir líka? „Það er rétt.“Hluti leiðréttingarinnar mun einnig nýtast heimilum á leigumarkaði. Hvernig þá? „Það er gert ráð fyrir því að skattleysi séreignasparnaðar, sem er annar liður þessarar aðgerðar, muni einnig nýtast þeim sem eru á leigumarkaði og þá í gegnum sérstaka húsnæðissparnaðarreikninga. Við gerum ráð fyrir því að nánari útlistun á þessu komi fram í janúar,“ segir Sigurður. Sett verður á laggirnar sérstök opinber úrskurðarnefnd um skuldaleiðréttingu sem á að taka á jaðar- og vafatilvikum sem kunna að rísa í tengslum við aðgerðirnar.Hér má nálgast ítarlega glærukynningu forsætisráðuneytisins um skuldaleiðréttinguna.
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira