Stöðugt gengi mikilvægt fyrir komandi kjarasamninga Samúel Karl Ólason skrifar 20. nóvember 2013 09:52 Mynd/GVA
Gengi krónunnar hefur verið stöðugt undanfarið og er það sérstaklega mikilvægt vegna komandi kjarasamninga þar sem verðbólguvæntingar eru mótandi fyrir umsamdar launahækkanir, og þar með þá verðbólgu sem fylgir í kjölfarið. Gengi krónunnar hefur verið stöðugt í í október og í nóvember eftir að hafa veikst nokkuð í september. Þá hefur veltan á millibankamarkaði með gjaldeyri verið lítil og þá sérstaklega núna í október. Þetta kemur fram í frétt frá Greiningu Íslandsbanka. Þar segir einnig að Seðlabankinn hafi ekki verið með inngrip á millibankamarkaðinum frá miðjum október, sem sé lengsta tímabil án inngripa síðan í júlí síðastliðnum. „Stöðugleiki krónunnar undanfarið er góð tíðindi. Sú mikla lækkun krónunnar sem var haustið 2012 og fram á vetur 2012/2013 er ekki að endurtaka sig nú.“Einnig er rekstrarumhverfi fyrirtækja og heimila stöðugra hvað þetta varðar. Krónan hefur verið ríflega 3% sterkari gagnvart vegnu meðaltali helstu viðskiptamynta það sem af er nóvember en á sama tíma í fyrra. Yfir síðustu þrjá mánuði hefur krónan verið ríflega 2% sterkari en á sama tíma í fyrra. „Afraksturinn er lægri verðbólga og verðbólguvæntingar.“ „Tímasetning aukins stöðugleika á gjaldeyrismarkaði og sterkari krónu er sérstaklega mikilvæg í ljósi þess að framundan eru kjarasamningar þar sem verðbólguvæntingar eru mótandi fyrir þær launahækkanir sem samið verður um og þar með þá verðbólgu sem í fylgir í kjölfarið.“ Verðbólgan hefur lækkað frá 4,3% í ágúst í 3,9% í lok október samkvæmt könnun Seðlabankans. „Auk þessa höfum við undanfarið gerst öllu bjartsýnni á verðbólguþróunina næsta kastið í verðbólguspám okkar,“ segir í frétt Greiningar. Capacent gerði könnun fyrir Samtök Atvinnulífsins og Seðlabankann í september. Þar kemur fram að tæpur helmingur stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins vænta þess að gengi krónunnar muni lækka á næstu 12 mánuðum. Aðeins 8% þeirra telja að krónan muni styrkjast.
Mest lesið Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Sjá meira