Breyta lögum svo námsmenn fái húsaleigubætur Jón Júlíus Karlsson skrifar 5. nóvember 2013 15:22 Bjarkey Gunnarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi standa að frumvarpi þar sem bæta á stöðu námsmanna í námi á framhalds- og háskólastigi sem leigja í íbúðarbúðarhúsnæði í sama sveitarfélagi og þeir eiga lögheimili í. Samkvæmt lögum um húsaleigubætur á nemi sem þarf að leigja íbúðarhúsnæði vegna náms síns aðeins rétt á húsaleigubótum ef hið leigða húsnæði sé í öðru sveitarfélagi en lögheimili nemans. Á þeim landsvæðum þar sem sveitarfélög hafa sameinast og orðið víðáttumikil blasir við að námsmenn í slíkum sveitarfélögum geta staðið frammi fyrir því að hljóta engar húsaleigubætur þótt svo það langt sé frá lögheimili þeirra á skólastað að þeir eru nauðbeygðir til að flytja þaðan og búa nær skóla á meðan á námi þeirra stendur. Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins og er vongóð um að frumvarpið verði að lögum. Umræða um frumvarpið fer fram á Alþingi síðar í vikunni eða eftir helgi. „Hugusnin er sú að þeir námsmenn sem búa í víðfemum sveitarfélögum og búa sem dæmi á heimavist eigi rétt á húsaleigubótum. Það gleymdist kannski að gera ráð fyrir breytingu á þessum lögum við sameiningar á sveitarfélögum. Nú á að bæta þessu við,“ segir Bjarkey í samtali við Vísi. Málið rak á fjörur hennar í eigin kjördæmi en hún var bæjarfulltrúi á Ólafsfirði um nokkurra ára skeið. Núverandi skipulag húsaleigubóta veldur því að umsókn framhaldsskólanema um húsaleigubætur, sem búa langt frá skóla, jafnvel í margra tuga kílómetra fjarlægð, er hafnað sökum þess að skóli og lögheimili eru innan sama sveitarfélags en umsókn nema úr nágrannasveitarfélagi við skóla, sem býr tiltölulega skammt frá skólastað, er samþykkt. Lagabreytingunni er stefnt gegn þessu ólánlega og óréttláta fyrirkomulagi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira