Íslendingaliðinu gæti verið vísað úr deildinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. október 2013 12:13 Hlynur, Ægir og Jakob Örn í rauðum búningum Sundsvall Dragons. Mynd/Heimasíða Sundsvall Dragons
Körfuknattleiksfélagið Sundsvall Dragons, sem Jakob Örn Sigurðarson, Hlynur Bæringsson og Ægir Þór Steinarsson leika með, á í miklum fjárhagslegum erfiðleikum. Forsvarsmenn sænska félagsins hafa þrjá mánuði til stefnu til þess að koma fjárhagnum á gott ról. Annars fær liðið ekki þátttökurétt í deild þeirra bestu í Svíþjóð á næstu leiktíð. „Verði einhverjar útistandandi skuldir þá verður umsókninni um keppnisleyfi hafnað,“ segir Mats Carlson, forseti sænska körfuknattleikssambandsins við staðarblaðið í Sundsvall í dag. Félagið hefur gert samning við bæjaryfirvöld í Sundsvall um útleigu á íþróttahöll félagsins. Reiknað er með að félagið fái jafnvirði tæplega fjögurra milljóna króna í gegnum þann samning. Skuldir félagsins eru þó taldar nema um fjórfaldri þeirri upphæð. Sigurður Hjörleifsson, umboðsmaður og faðir Jakobs Arnar og umboðsmaður Hlyns, segist við Sundsvall Tidning ekki hafa orðið var við að erfiðleikarnir hafi haft áhrif á leikmennina tvo. Ljóst sé þó að ástandið skapi vissan óróleika. Alex Wesby, stjörnuleikmaður Drekanna, æfði ekki með liðinu í gærkvöldi. Hvorki umboðsmaður Wesby né forsvarsmenn Sundsvall hafa viljað staðfesta hvers vegna.
Körfubolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Sjá meira