Nýi RÚV-bíllinn er ofurgræja Jakob Bjarnar skrifar 30. október 2013 16:40 Nýji RÚV-bíllinn kemur frá Ítalíu og eru nú RÚV-arar færir í flestan sjó. Bjarni Guðmundsson segir bílinn kosta 85 milljónir.
RÚV ohf. hefur eignast nýjan útsendingarbíl sem kostar litlar 85 milljónir en við bætist annað eins við í kostnaði við tæknibúnað. Tæknimenn á RÚV er ánægðir með gripinn. „Já, eða allt að því,“ sagði Guðmundur Einarsson tæknistjóri hjá RUV ohf kátur þegar hann var spurður hvort nýi tæknibíll Ríkisútvarpsins gæti flogið?Bylting fyrir tæknimennina Um er að ræða Renault-bíl sem Ríkisútvarpsmenn keyptu frá Ítalíu. „Já, við fengum hann notaðan þaðan. Við erum rétt um það bil að klára að standsetja hann og að nota hann með okkar gamla. Þau eru nokkur verkefni sem liggja fyrir og já, við verðum klárir í þennan umdeilda leik,“ segir Guðmundur. Bíllinn verður til dæmis notaður til að senda út frá íþróttaviðburðum og landsleikjum, það vill einmitt svo skemmtilega til að hann verður tilbúinn fyrir hinn undeilda leik við Króatatíu. „Við fengum hann ekki fullbúinn. En, við erum búnir að koma fyrir slatta af tækjum í hann.“ Guðmundur segir löngu tímabært að endurnýja bílinn. Sá gamli er árgerð ´86 en þess er árgerð 2011. Í þeim gamla er 3. kynslóð af myndavélum. Guðmundi vefst tunga um tönn þegar hann er spurður hversu mikið bíll sem þessi kostar? „Ég er ekki rétti maðurinn til að svara því. Ég er bara hérna á gólfinu. Þú verður að tala við Jón Pál.“Partur af HD-væðingu En, Jón Páll Pálsson deildarstjóri segist bara vera með tæknireksturinn á sinni könnu. Segir að rétt sé að inna hann Hannes eftir því hvað svona gripur kostar. „En, þetta er endurnýjun á 25 ára gömlum ´bil. Útsendingarbíll. Gamli er fimm kamerubíll en þessi tíu. Við stefnum að því fyrir lok 2016 að hafa allar útsendingar í HD-merki. Þetta er partur af HD-væðingunni. Nú erum við sveittir við að klára allar tengingar. Erum aðeins byrjaðir að nota hann. Hann er núna í Korpu en þar erum við í samvinnu við Saga Film að taka upp laugardagsþáttinn Vertu viss, spurningaþáttur á laugardegi,“ segir Jón Páll. Gaman er að segja frá því að það kemur sér vel að vera með tvo útsendingarbíla nú þegar landsleikurinn verður sýndur. „Króatarnir vilja sér stúdíó. Þetta verður ein stærsta fótboltaútsending sem við höfum gert. En, Króatarnir nota gamla bílinn. Þeir eru í SD-merkinu; Standard Definition.“En, hvað kostar bíllinn? En, hvað kostar bíllinn? Hannes Jóhannsson er forstöðumaður hjá Ríkissjónvarpinu og hann segist ekki vita hversu opinberar þær upplýsingar eru? „Við keyptum bílinn notaðan frá Ítalíu. Af fyrirtæki sem er í útleigu á bílum. Við keyptum hann myndavélalausan. Svo var farið í útboð á myndavélapakkanum sem er stór hluti af þessu. Við tókum lægsta tilboði í tíu myndavélar og fórum mjög vel út úr því. Ég held að við séum með þennan bíl í svakalega fínum málum peningalega séð. En, verð að biðja þig vinsamlegast að tala við hann Bjarna um kostnaðinn.“Varaútsendingarbúnaður fyrir RÚV Bjarni Guðmundsson er framkvæmdastjóri hjá RÚV ohf. „Þetta er upptöku- og útsendingarbíll sem notaður verður við upptökur á viðburðum svo sem umspilsleik íslenska landsliðsins, sem fram fer á Laugardalsvelli 15. nóvember. Bíllinn verður líka notaður við yfirgang í HD-væðingunni, auk þess að vera notaður sem varaútsendingarbúnaður fyrir sjónvarpið. Með kaupunum á bílnum fylgdi rafstöðvarbíll og samtals kostuðu bílarnir 85 milljónir króna.“ Og, þá er ótalinn kostnaður við tækjabúnað sem, eins og Hannes segir, er stór hluti kostnaðar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira