"Tvískinnungur hjá stjórnvöldum varðandi áfengisauglýsingar" 31. október 2013 19:30
Auglýsingar frá ÁTVR eru að engu leyti öðruvísi en þær sem menn hafa verið dæmdir fyrir hérlendis, segir hæstaréttarlögmaður. Hann segir afstöðu íslenskra stjórnvalda til áfengisauglýsinga lýsa stórmerkilegum tvískinnungi. Fyrsta setningin í áfengislögunum er skýr en þar segir, Hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum eru bannaðar. Margir hafa látið reyna á lögin og sumir fengið refsingu fyrir. Nýverið birti Vínbúðin auglýsingu þar sem fram kemur að breytt og bætt vínbúð við Stekkjarbakka hafi verið opnuð á ný. Greina má einstaka áfengistegundir í bakgrunni. Hæstarréttarlögmaðurinn, Haukur Birgisson telur að þessi auglýsing, sem og reyndar allar aðrar frá Vínbúðinni sé ekki í anda laganna. "Sjálfur er ég reyndar þeirrar skoðunar að það eigi að leyfa auglýsingar á löglegum vörum. En punkturinn er hinsvegar þessi. Það er enginn annar tilgangur með auglýsingu frá Áfengis og tóbaksverslun Ríkisins en að fá fólk til að kaupa áfengi. Og það finnst íslenska ríkinu í lagi en á sama tíma ákveður það að refsa einstaklingum auglýsingar af sama tagi. Það gengur auðvitað ekki og þetta er ekkert annað en tvískinnungur," segir Haukur."En þegar verið er að auglýsa opnunartíma eða nýjar búðir, sleppur það ekki?" "Það má deila um það. Lögin kveða á um það að ekki megi auglýsa áfengi í neinni form eða mynd. Hvað eru auglýsingar frá verslun sem selur eingöngu áfengi annað en auglýsing til að hvetja fólk til að kaupa áfengi?"Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVRÞessu er Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR algjörlega ósammála. "Við teljum engan veginn að hægt sé að túlka það að þegar verið er að opna vínbúð eftir breytingar eftir að hafa verið lokað í tæpar þrjár vikur að það sé hægt að segja að það sé áfengisauglýsing. Þessi Vínbúð hefur verið þarna í mörg ár og er búin að vera lokuð í tæpar þrjár vikur og við viljum bara segja frá því að hún sé opnuð aftur," segir Sigrún."Og þar af leiðandi fá viðskiptavini eða hvað?" "Auðvitað bjóðum við bara viðskiptavini velkomna. Það er ekki okkar hagur að viðskiptavinir komi að lokuðum dyrum," segir Sigrún.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Sjá meira