Sífellt meiri stemning fyrir Hrekkjavöku hér á landi Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 31. október 2013 21:29
Hrekkjavakan eða Halloween eins og hún nefnist á ensku er sífellt að verða meira áberandi hér á landi. Það eru skiptar skoðanir á þessum sið sem margir vilja taka upp hér. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir flutti heim frá New York fyrir rúmu ári síðan þar sem hún bjó ásamt fjölskyldu sinni í nokkur ár. Þau fjölskyldan halda Hrekkjavökuna en þau kynntust hátíðinni fyrst þegar þau bjuggu úti. „Þetta er skemmtileg hátíð, bæði fyrir börn og fullorðna. Það var gaman að kynnast hátíðinni úti og sjá hvað fólk leggur mikið upp úr henni. Það er mikið lagt í skreytingar og allir eða flestir taka þátt. Vinnustaðir skreyta hjá sér og skólarnir halda böll,“ segir Þorbjörg. Hún segir fólk úti skreyta húsin sín bæði að innan og utan með alls konar skrauti til dæmis með risa kóngulóm og upplýstum graskerum. Þorbjörg á þrjár dætur og segir þær ekki taka annað í mál en að halda upp á hátíðina hér. „Við fluttum meira magn af Hrekkjavökuskrauti heim með okkur en jólaskraut,“ segir hún. Hún hafði ekki velt þessum sið mikið fyrir sér áður en hún flutti út en hún tekur eftir því núna að það sé þó nokkur stemning hér á landi fyrir hátíðinni. „Sumir eru á móti þessu, að við séum að taka hér upp ameríska siði en sagan á bak við Hrekkjavökuna er alls ekki bara amerísk. Ég skil þessi rök líka illa þar sem mér þykir þetta viðeigandi á þessum tíma árs, að gera sér glaðan dag með fjölskyldunni. Þetta er bæði fjölskylduvæn og sjarmerandi hátíð,“ segir Þorbjörg sem hélt Hrekkjavökupartý fyrir bekkjarsystur dætra sinna í dag og þangað mættu gestir í búning.Einhverjir vinnustaðir tóku upp á því að halda upp á Hrekkjavöku. Tölvufyrirtækið Plain Vanilla hélt upp á daginn á föstudaginn var. Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri fyrirtækisins segir að þau haldi þemadaga reglulega og því hafi verið tilvalið að hafa Hrekkjavökuþema í þetta skiptið. "Það mættu allir í búning og það var mikil stemning," segir hann. Á Facebook síðu Ríkiskaupa má sjá að þar gerðu starfsmenn hrekktu samstarfsfélaga sína með því að hylja húsgögn með plasti og öðru. Einnig skreyttu þeir vinnustaðinn með Hrekkjavökuskreytingum eins og kóngulóm. Starfsmenn Hrafnistu Í Hafnarfirði gerðu sér einnig glaðan dag. Þuríður Gunnarsdóttir, starfsmaður á Hrafnistu, sagði að síðusu vikur væri búið að vera mikið sprell í gangi. „Þetta hafa verið skemmtilegar vikur með stríðni og vinskap í fararbroddi. Það mætti enginn i búning en þegar hún mætti í vinnu var búið að snúa öllu á vinnustaðnum við. Meira að segja uppþvottavélinni.“ Rut Ingólfsdóttir, starfsmaður á Leigulistanum, mætti vel skreytt til vinnu í dag. „Það mætti að vísu enginn annar í búning, mér finnst bara allt svona brall svo skemmtilegt. Allt sem brýtur upp hversdagsleikann,“ segir hún. „Ég er ekki beint í búning, ég er í gömlum kjól og gamalli peysu svo er ég í beinagrindanáttbuxum af syni mínum sem líta út eins og beinagrindaleggings á mér. En ég er máluð en ég hef gaman af slíku.“ „Ég geri þetta svolítið til að sýna krökkunum að það megi alveg „galsast“ aðeins. Heimurinn er ekki alltaf alvarlegur. Það getur verið ágætt a vera pínu grallari í sér og segja: Ég ætla að mála mig, viltu vera með?“ Rut segist sjálf hafa verið á móti þessum sið lengi vel. Hún segir að við ættum auðvitað að passa upp á okkar hefðir og okkar siði, þeir mega ekki gleymast. En með árunum hafi hún mildast og vilji nýta hvert tækifæri til að halda upp á eitthvað með fjölskyldunni en fjölskyldan hennar ætli að halda upp á Hrekkjavökuna í kvöld.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Sjá meira