"Ísland besti kosturinn fyrir Króatíu“ Jón Júlíus Karlsson skrifar 21. október 2013 19:16 „
Ísland er besti kosturinn fyrir Króatíu.“ Þetta segir Króati búsettur á Íslandi. Hann á von á því að fá fjölmarga landa sína í heimsókn þegar landslið Króatíu mætir Laugardalsvöll í næsta mánuði. Við litum í heimsókn í Álfheima í Reykjavík í dag þar sem Króatainn Hrvoije Kralj býr ásamt fjölskyldu sinni. Mikil ánægja ríkir í Króatíu með að fá Ísland sem mótherja í umspilinu um laust sæti á Heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári. Óskamótherji segja Króatar en hvernig er stemmningin hjá Króötum búsettum á Íslandi? „Þetta er mjög gaman, skemmtilegt að fá Ísland. Við vonum að það verði sama niðurstaða og þegar við mættumst síðast. Ísland var besti kosturinn fyrir okkur og Króatía versti kosturinn fyrir Ísland,“ segir Hrvoje Kralj. „Ég hefði frekar viljað fá annan andstæðing en Ísland því ég vildi sjá bæði liðin áfram. Svona er lífið,“ bætir Tomislav Magdich við. Þó Króatía sé sigurstranglegra þá eru okkar menn ekkert of sigurvissir. „Ísland er miklu sterkara en þegar við mættum þeim árið 2005 og með mjög góðan þjálfara,“ segir Tomislav.Síminn hringir stanslaust Það er búið að vera nóg að gera hjá Hrvoije við að svara símanum í dag. Fjölmargir landar hans eru búnir að hafa samband og athugað hvort það sé möguleiki á gistingu. „Síminn er búinn að hringja stanslaust og margir sem eru búnir að senda skilaboð um að koma hingað, fá gistinu og miða. Það verður góð stemmning og gaman að þetta sé á föstudegi. Það verður örugglega fullt hús af Króötum. Ég verð með tjald úti í garði og stemmningin örugglega góð,“ segir Hrvoije. Um 150 Króatar búa á Íslandi og þeim gæti fjölgað á næstu árum enda gekk Króatía nýverið inn í Evrópusambandið. Hvernig er að búa á Íslandi? „Það er frábært að búa á Íslandi. Síðasta sumar var alveg frábært. Það er mjög gott að ala hér upp börn,“ segir Hrvoije Kralj.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira