Innlent

Erlend verkefni skipta sköpum fyrir Gæsluna

Heimir Már Pétursson skrifar
Verkefni Landhelgisgæslunnar í útlöndum standa undir allt að þriðjungi rekstrar hennar.
Verkefni Landhelgisgæslunnar í útlöndum standa undir allt að þriðjungi rekstrar hennar.
Verið er að skoða aðkomu Landhelgisgæslunnar að auknu eftirliti á Miðjarðarhafi eftir sjóslysið við Lampedusa í síðustu viku. Forstjóri Gæslunnar segir erlend verkefni hafa skipt sköpum fyrir hana á undanförnum árum og allt að þriðjungur rekstrarfjár komi frá þeim.

Fjöldi flóttamanna frá Afríku reynir að komast til Evrópu yfir Miðjarðarhafið á hverju ári á alls kyns fleytum og slys eru tíð. Skemmst er að minnast þess þegar um þrjú hundruð flóttamenn frá Eritreu fórust á fimmtudag í síðustu viku við ítölsku eyjuna Lampedusa.

TF SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, er nú við eftirlitsstörf við Gíbraltar og segir Georg Lárusson forstjóri Gæslunnar að verkefni hennar kunni að verða framlengd vegna þess að Evrópusambandið vilji efla gæslu á Miðjarðarhafi eftir þetta hörmulega slys.

„Já, þau mál eru til skoðunar. Við buðumst til þess að framlengja okkar dvöl þarna niður frá og það er margt sem bendir til þess að við flytjum flugvélina til Sikileyjar og tökum að okkur verkefni í nágrenni Lampedusa,“ segir Georg.

Þá segir hann það skýrast á næstu dögum hvort Landhelgisgæslan leggi einnig fram skip til eftirlitsins, en Gæslan hefur áður haft skip við gæslustörf ásamt flugvélinni á Miðjarðarhafi. Verkefni sem þessi séu Landhelgisgæslunni mjög mikilvæg.

TF-SIF, ný og fullkomin flugvél gæslunnar hefur mestmegnis verið í verkefnum erlendis.
„Það má eiginlega segja að það sé nánast lífsnauðsynlegt fyrir Landhelgisgæsluna að fá verkefni utanlands á þessum tímum. Það er gjaldeyrisskapandi og gerir það að verkum að við náum að halda okkar mönnum í vinnu og tækjum í notkun og viðhaldi,“ segir forstjórinn.

Fyrir utan að Gæslan geri mikið gagn með þessum störfum og hafi bjargað mörg hundruð manns á Miðjarðarhafinu á undanförnum árum.

„Okkar menn hafa náð að marka sig vel þarna niður frá og við höfum staðið okkur vel satt að segja. Þannig að okkar orðspor er mjög gott í þessum verkefnum á þessum slóðum,“ segir Georg.

Þá geri þessi verkefni það að verkum að starfsmenn Gæslunnar fái góða þjálfun við flókin verkefni, þegar mjög hafi þrengt að rekstri hennar á árunum eftir hrun. Verkefnin hafi skipt miklu máli í rekstri Landhelgisgæslunnar.

„Erlend verkefni Landhelgisgæslunnar  hafa numið allt að einum þriðja af rekstrarkostnaði.  Þannig að þarna er um að ræða all nokkurt fé,“ segir Georg. Þessi verkefni hafi beinlínis bjargað Gæslunni á þrengingartímum og tryggt að hún hafi getað veitt nauðsynlega flugþjónustu innanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×