Erlend verkefni skipta sköpum fyrir Gæsluna Heimir Már Pétursson skrifar 11. október 2013 14:06 Verkefni Landhelgisgæslunnar í útlöndum standa undir allt að þriðjungi rekstrar hennar.
Verið er að skoða aðkomu Landhelgisgæslunnar að auknu eftirliti á Miðjarðarhafi eftir sjóslysið við Lampedusa í síðustu viku. Forstjóri Gæslunnar segir erlend verkefni hafa skipt sköpum fyrir hana á undanförnum árum og allt að þriðjungur rekstrarfjár komi frá þeim. Fjöldi flóttamanna frá Afríku reynir að komast til Evrópu yfir Miðjarðarhafið á hverju ári á alls kyns fleytum og slys eru tíð. Skemmst er að minnast þess þegar um þrjú hundruð flóttamenn frá Eritreu fórust á fimmtudag í síðustu viku við ítölsku eyjuna Lampedusa. TF SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, er nú við eftirlitsstörf við Gíbraltar og segir Georg Lárusson forstjóri Gæslunnar að verkefni hennar kunni að verða framlengd vegna þess að Evrópusambandið vilji efla gæslu á Miðjarðarhafi eftir þetta hörmulega slys. „Já, þau mál eru til skoðunar. Við buðumst til þess að framlengja okkar dvöl þarna niður frá og það er margt sem bendir til þess að við flytjum flugvélina til Sikileyjar og tökum að okkur verkefni í nágrenni Lampedusa,“ segir Georg. Þá segir hann það skýrast á næstu dögum hvort Landhelgisgæslan leggi einnig fram skip til eftirlitsins, en Gæslan hefur áður haft skip við gæslustörf ásamt flugvélinni á Miðjarðarhafi. Verkefni sem þessi séu Landhelgisgæslunni mjög mikilvæg.TF-SIF, ný og fullkomin flugvél gæslunnar hefur mestmegnis verið í verkefnum erlendis.„Það má eiginlega segja að það sé nánast lífsnauðsynlegt fyrir Landhelgisgæsluna að fá verkefni utanlands á þessum tímum. Það er gjaldeyrisskapandi og gerir það að verkum að við náum að halda okkar mönnum í vinnu og tækjum í notkun og viðhaldi,“ segir forstjórinn. Fyrir utan að Gæslan geri mikið gagn með þessum störfum og hafi bjargað mörg hundruð manns á Miðjarðarhafinu á undanförnum árum. „Okkar menn hafa náð að marka sig vel þarna niður frá og við höfum staðið okkur vel satt að segja. Þannig að okkar orðspor er mjög gott í þessum verkefnum á þessum slóðum,“ segir Georg. Þá geri þessi verkefni það að verkum að starfsmenn Gæslunnar fái góða þjálfun við flókin verkefni, þegar mjög hafi þrengt að rekstri hennar á árunum eftir hrun. Verkefnin hafi skipt miklu máli í rekstri Landhelgisgæslunnar. „Erlend verkefni Landhelgisgæslunnar hafa numið allt að einum þriðja af rekstrarkostnaði. Þannig að þarna er um að ræða all nokkurt fé,“ segir Georg. Þessi verkefni hafi beinlínis bjargað Gæslunni á þrengingartímum og tryggt að hún hafi getað veitt nauðsynlega flugþjónustu innanlands.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira