Von um bætt lífskjör með auknum hagvexti Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. október 2013 12:45
Hagvöxtur mun aukast um 0,3 prósentustig og verður 1,7 prósent á þessu ári samkvæmt spá greiningar Íslandsbanka. Þá telur aðalhagfræðingur bankans að framkvæmdir á Helguvík komist á skrið á árinu 2015 og hagvöxtur verði 2,7 prósent þá. Landsframleiðslan og lífskjörin haldast í hendur því vöxtur í landsframleiðslunni er nauðsynlegur til að fjölga störfum. Ingólfur Bender aðalhagfræðingur Íslandsbanka kynnti spána á Fjármálaþingi bankans á Nordica hóteli. Hagvaxtarspáin er sjálfstæð enda vinnur greining bankans óháð afstöðu stjórnenda Íslandsbanka.Eins komma sjö prósenta hagvöxtur. Þetta er nú ekki beysinn vöxtur? „Þetta er ekki mikill hagvöxtur í samanburði við það sem hagkerfið hefur verið að vaxa um á undanförnum áratugum. Þar sem vöxturinn var tvö og hálft prósent þegar litið er til síðustu þriggja áratuga, þetta er undir því. Þetta er engu að síður meiri hagvöxtur en við sáum á síðasta ári og meiri hagvöxtur en við sjáum í helstu viðskiptalöndum okkar að undanförnu,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Íslandsbanka í viðtali við Stöð 2. Ingólfur segir að hagvöxturinn verði drifinn áfram af útflutningi og einkaneyslu.Bjartsýnir á Helguvík Greining spáir því hagvöxturinn verði 2,6 prósent á næsta ári og 2,7 prósent 2015. Athygli vekur að Ingólfur og samstarfsmenn hans gera ráð fyrir að Helguvíkurverkefnið fari í gang 2015 en Norðurál og HS Orka hafa hingað til ekki náð neinu samkomulagi um raforkuverð sem hefur stöðvað framkvæmdir. Þá liggur ekki fyrir hvaðan orkan á að koma enda er gert ráð fyrir að álverið þurfi 625 megavött. „Hluti af því sem við byggjum spána okkar á er að álverð komi til með að hækka. Sú fjárfesting (Helguvík) hvílir svolítið á því að álverð hækki og arðsemin verði meiri. Þetta er að skila 0,6 prósentustigum af þessum hagvexti næstu tvö ár þannig að ef ekki verður af þessu þá verður hægari hagvöxtur, en það er ekki eins og það verði enginn hagvöxtur,“ segir Ingólfur. Það hefur vakið upp spurningar hvers vegna greiningaraðilar eru ennþá með Helguvíkurverkefnið í sínum spám. Bæði Seðlabankinn og fjármálafyrirtæki hafa gengið út frá því að það fari í gang. Ástæðan er í flestum tilvikum sú að það er undirliggjandi samningur vegna verkefnisins þótt ekki hafi náðst samkomulag um raforkuverð. Þá hefur Norðurál eytt mörgum milljörðum króna í undirbúning. Stálgrindurnar í Helguvík eru hins vegar þess eðlis að lítið mál er að skrúfa þær niður aftir og koma þeim í verð, ef svo ber undir. Þannig er ekki um að ræða óafturkræfan kostnað, eða tjón, fyrir Norðurál, þótt tjónið verði alltaf eitthvað ef verkefnið nær ekki fram að ganga. Dugleg að afskrifa Á Fjármálaþingi komu fram áhugaverðar upplýsingar um afskriftir á skuldum viðskiptavina Íslandsbanka. Fram kom í máli Birnu Einarsdóttur, bankastjóra, að bankinn hefði afskrifað skuldir viðskiptavina, bæði fyrirtækja og einstaklinga upp á samtals 500 milljarða króna frá 2009. Það kom hins vegar ekki fram sundurliðun á fjárhæðinni, þ.e hversu stór hluti væri hjá fyrirtækjum, en þar liggur nú stærstur hluti fjárhæðarinnar. Þá uppýsti Birna að aukin eftirspurn væri eftir útlánum og að eigið fé bankans hefði rúmlega tvöfaldast frá 2009, en aukningin nemur 125 prósentum.
Mest lesið Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Sjá meira